Úrslitaleikur Tommamótsins fer fram í Egilshöllinni næsta sunnudag klukkan 11:00 og mætast þar úrvalslið valin af Eyjólfi Sverrissyni og Rúnari Kristinssyni.
Leikurinn er til styrktar Tómasar Inga Tómassonar yfirþjálfara yngri flokka Fylkis sem hefur ekki náð bata eftir að hafa fengið gervimjöðm í ársbyrjun 2015.
Eyjólfur stýrir landsliðinu á meðan Rúnar þjálfar pressuliðið og eru þeir byrjaðir að velja í hópana sína.
„Ég veit að Rúnar er klókur þjálfari, hann veit alveg hvað hann er að gera. Sumir halda að mitt lið sé að fara inn í leikinn til að verjast en við munum koma á óvart. Ég valdi nokkra sóknarsinnaða leikmenn í hópinn, eins og Sigga Ágústs sem skoraði sem dæmi mark á æfingu um daginn og gaf boltann tvisvar, það gerist ekki oft," segir Eyjólfur.
„Nú þegar hópurinn hefur verið tilkynntur þá veit ég að það fer um Rúnar. Það er tilhlökkun í hópnum, við munum fara í leikinn til að sigra."
Landsliðið:
Þjálfari - Eyjólfur Sverrisson
Búningastjóri - Lúðvík Jónsson
Liðsstjóri - Óskar Hrafn Þorvaldsson
Sjúkraþjálfari - Stefán Örn Pétursson
Jörundur Kristinsson
54 leikir í B deild
Birkir Kristinsson
316 leikir í efstu deild - 74 A landsleikir
Gunnar Sigurðsson
131 leikir í efstu deild
Arnar Már Arnþórsson
219 ELO stig
Matthías Sigvaldason
22 leikir í efstu deild
Veigur Sveinsson
10 leikir í bikarkeppni KSÍ
Óli Ingi Skúlason (c)
259 leikir í atvinnumennsku - 36 A landsleikir
Eyjólfur Sverrisson
307 leikir í efstu deild Þýskalands - 0 leikir í efstu deild á Íslandi
Jón Steindór Þorsteinsson
Stjórnað 287 leikjur sem þjálfari
Arnar Grétarsson
149 leikir í efstu deild - 71 A landsleikur
Sindri Bjarnason
55 leikir í efstu deild
Sigurður Ágústsson
Engin leikur í efstu deild - Sigur á Dolmatov í hraðskák 2001
Hörður Már Magnússon
135 leikir í efstu deild
Pétur Arason
112 ELO stig
Þorsteinn Sveinsson
36 leikir í efstu deild
Gunnar Oddsson
291 leikur í efstu deild - 3 A landsleikir
„Við förum fullir sjálfstrausts inn í leikinn. Ég er með frábæra leikmenn í mínu liði. Ég held að nánast allir leikmenn mínir hafi verið fyrirliðar hjá sínum félagsliðum í gegnum tíðina, nema náttúrulega Hjörvar," sagði Rúnar.
„Við ætlum að spila sóknarbolta og ég treysti mest á að Willum Þór Þórsson beri uppi sóknarleik okkar, útsjónasamur, teknískur og hraður strákur. Úrslit leiksins munu ráðast á dagsforminu."
Pressuliðið:
Þjálfari - Rúnar Kristinsson
Búningastjóri - Sigurður Þórðarson
Liðsstjóri - Nökkvi Sveinsson
Sjúkraþjálfari - Róbert Magnússon
Hjörvar Hafliðason
6 leikir í A liði yngri flokka, 112 leikir í B liði.
Kristján Finnbogason
268 leikir í efstu deild - 20 A landsleikur
Brynjar Björn Gunnarsson
74 A landsleikir
Þormóður Egilsson
239 leikir í Efstu deild - 8 A landsleikir
Guðni Bergsson (c)
80 A landsleikir
Reynir Leósson
201 leikir í efstu deild
Rúnar Kristinsson
104 A landsleikir
Ingi Sigurðsson
205 leikir í efstu deild
Bjarnólfur Lárusson
165 leikir í efstu deild
Lúðvík Bergvinson
38 leikir í efstu deild
Sigurvin Ólafsson
135 leikir í efstu deild - 7 A landsleikir
Hilmar Björnsson
185 leikir í efstu deild - 3 A landsleikir
Þorsteinn Guðjónsson
53 leikir í efstu deild - 4 A landsleikir
Willum Þór Þórsson
2 samþykkt frumvörp á Alþingi
Athugasemdir