HM: Kane bætti met Lineker og England vann riðilinn

Harry Kane

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Harry Kane

Mynd: EPA
England vann L-riðil á HM eftir sigur á Panama í lokaumferð riðilsins í kvöld.
Panama fékk tækifæri á fyrstu sekúndum leiksins en Tomas Rodriguez átti skot beint á Jordan Pickford.

Englendingum gekk illa að skapa sér góð færi og Pickford þurfti nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum. Markalaust í hálfleik.
England náði forystunni eftir um klukkutíma leik. Bukayo Saka tók hornspyrnu og boltinn fór til Bellingham sem skoraði með skoti við markteiginn.
Stuttu síðar bætti Harry Kane við öðru marki þegar hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bellingham. Hann er kominn með 11 mörk á HM og er orðinn markahæsti Englendingurinn á heimsmeistaramóti, hann bætti met Gary Lineker.
Panama fékk sín tækifæri þar sem Englendingar voru opnir til baka. Ismael Díaz var nálægt því að skora en skaut yfir.
Noni Madueke var nálægt því að innsigla sigurinn í uppbótatíma en fór illa með færið. Panama skoraði strax í kjölfarið en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Nær komust þeir ekki og England vann því riðilinn.
Króatía endar í 2. sæti riðilsins eftir sigur á Gana en Króatía náði forystunni í tvígang.
Petar Sucic kom Króatíu yfir eftir hálftíma leik með skoti vel fyrir utan teiginn. Á þeim tímapunkti var Króatía á toppnum.
Derrick Luckassen jafnaði metin fyrir Gana þegar hann skoraði eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu og kom Gana upp í 2. sæti. Nikola Vlasic tryggði hins vegar Króatíu sigurinn og annað sætið í riðlinum. Það hafði lítil áhrif á framhaldið þar sem bæði lið eru komin áfram.
Panama 0 - 2 England
0-1 Jude Bellingham ('62 )
0-2 Harry Kane ('67 )
Króatía 2 - 1 Gana
1-0 Petar Sucic ('31 )
1-1 Derrick Luckassen ('73 )
2-1 Nikola Vlasic ('83 )