Kane orðinn markahæstur í sögu Englands á HM

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Harry Kane er orðinn markahæsti leikmaður enska landsliðsins á heimsmeistaramóti eftir að hafa skorað annað mark liðsins gegn Panama í kvöld.
Jude Bellingham kom Englandi yfir og hann lagði upp mark Kane þegar hann átti fyrirgjöf á kollinn á framherjanum sem skoraði sitt ellefta mark á heimsmeistaramóti.

Kane skoraði tvennu í fyrstu umferð gegn Króatíu og jafnaði þar með met Gary Lineker en hann bætti metið í kvöld.
Króatía er 1-0 yfir gegn Gana. Ef leikirnir enda svona endar England á toppnum, Króatía í 2. sæti og Gana í 3. sæti og öll liðin fara áfram.
Sjáðu markið hér