Fotbolti.net
07.02.26 - 15:26
Brynjar Ingi Erluson

Frank: Romero baðst afsökunar

Thomas Frank

Thomas Frank

Canon

Mynd: EPA

Thomas Frank, stjóri Tottenham, var stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir að hafa tapað fyrir Manchester United, 2-0, á Old Trafford í dag, en hann var sérstaklega ánægður með þrautseigjuna.
England: Man Utd vann fjórða leikinn í röð - Romero skúrkurinn
TENGT EFNI

England: Man Utd vann fjórða leikinn í röð - Romero skúrkurinn

Tottenham var inn í leiknum og barðist þrátt fyrir að vera manni færri í rúman klukkutíma.

„Mér fannst fyrstu 30 mínúturnar mjög góðar miðað við að við vorum á erfiðum útivelli gegn liði sem er með mikið sjálfstraust og flæði. Ég er mjög stoltur af því hvernig leikmennirnir brugðust við eftir rauða spjaldið.“

„Þrautseigjan, halda hausnum í leiknum og samt að geta ógnað og skapað eitthvað gerir mig ótrúlega stoltan af þeim. Síðan gerum við þrjár sóknarsinnaðar skiptingar og fáum á okkur annað markið. Við lögðum samt allt í þetta þessar 60-70 mínútur sem við vorum manni færri. Ég er stoltur af stuðningsmönnunum, það heyrðist mjög vel í þeim í gegnum í allan leikinn,“
sagði Frank.

Cristian Romero, fyrirliði Tottenham, sá rauða spjaldið á 29. mínútu fyrir tæklingu á Casemiro, en Frank segir hann hafa beðið liðsfélaga sína afsökunar inn í klefa.

„Fyrst og fremst var það aldrei af vilja gert hjá Cristian að fylgja svona á eftir og fá rauða spjaldið. Hann reynir við boltann, en því miður eru reglurnar svona og þá er þetta rautt spjald. Cristian bað liðsfélaga sína afsökunar inn í klefa.“

„Svona er þetta. Við þurfum að eiga við þetta. Það er þrautseigjan sem við höfum verið að leggja mikla vinnu í. Það skilaði ekki úrslitum í dag, en það sem leikmennirnir sýndu á vellinum var hreint út sagt ótrúlegt. Núna einbeitum við okkur að leiknum gegn Newcastle á þriðjudag,“
sagði Frank.
Frank: Romero baðst afsökunar
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.