Fotbolti.net
07.02.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Howe: Augljóslega ekki að gera nógu góða hluti

Howe: Augljóslega ekki að gera nógu góða hluti
Canon

Mynd: EPA

Newcastle United tapaði á heimavelli gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í dag og viðurkenndi Eddie Howe eftir leikslok að hann væri ekki að standa sig nægilega vel í starfinu sem aðalþjálfari liðsins.
Brentford hafði betur eftir æsispennandi fimm marka leik og skilur Newcastle eftir í neðri hluta deildarinnar, með 33 stig eftir 25 umferðir. Liðið er búið að tapa fjórum og gera eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum í öllum keppnum.

Fjölmiðlar á Englandi telja starf Howe vera í hættu eftir slakt gengi.

„Það er alltaf pressa á manni í þessu starfi og það breytir engu fyrir mig hvers konar pressa það er, hvort sem hún snýst um að vinna næsta leik eða að snúa slæmu gengi við eins og er tilfellið með okkur á þessum tímapunkti," sagði Howe eftir leikinn dramatíska þar sem Newcastle náði forystunni en endaði á að tapa á St. James' Park.

„Ég er mjög kröfuharður á sjálfan mig og miðað við gengið á tímabilinu þá er ég augljóslega ekki að gera nægilega góða hluti við stjórnvölinn sem stendur. Ég er pirraður og reiður út í sjálfan mig og ég kenni sjálfum mér um. Ég tek þessa ábyrgð á mínar herðar, ég kenni engum öðrum um.

„Ég veit að ég legg mig allan fram í starfið en ég þarf að vinna betur og gera meira. Ég þarf að finna nýjar leiðir til að ná því besta úr leikmönnum. Ég held ekki að margir leikmenn í hópnum myndu segja að þeir væru að spila sinn besta fótbolta þessa dagana, sem þýðir að við höfum svigrúm til að bæta okkar leik umtalsvert."


Stuðningsmenn Newcastle bauluðu á leikmenn eftir tapið í dag enda eru þeir orðnir þreyttir á slöku gengi.

„Stuðningsmennirnir munu standa með okkur um leið og við leggjum inn nægilega góða frammistöðu. Ég veit að þeir munu standa með okkur, þeir hafa alltaf verið frábærir. Þeirra viðbrögð í dag eru eðlileg. Þeir eru að bregðast við því sem við erum að sýna þeim, mér finnst það ekki vera neitt vandamál. Það er undir okkur komið að snúa því við með góðri frammistöðu."

Newcastle er svo gott sem búið að missa af meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð en liðið mætir Qarabag í fyrstu umferð í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar í seinni hluta mánaðar.

Lærlingar Eddie Howe duttu úr leik í undanúrslitum deildabikarsins og heimsækja Aston Villa í FA bikarnum um næstu helgi.
Howe: Augljóslega ekki að gera nógu góða hluti
Canon

Mynd: EPA

Howe: Augljóslega ekki að gera nógu góða hluti
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.