Fotbolti.net
07.02.26 - 15:55
Brynjar Ingi Erluson

Segir að Man Utd verði að vinna fimm í röð - „Annars mun trúin hverfa“

Bruno Fernandes

Bruno Fernandes

Canon

Mynd: EPA

„Ef þú reynir að skjóta boltanum þá eru líkurnar miklar á því að boltinn fari hátt upp út af skoppinu. Sumir segja að ég hafi ekki verið að reyna þetta, en þetta var nákvæmlega það sem ég ætlaði að gera því ég vissi að boltinn myndi detta beint niður þannig ég þurfti að setja hann þvert framhjá Vicario,“ sagði Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, um mark sitt í 2-0 sigrinum á Tottenham á Old Trafford í dag.
England: Man Utd vann fjórða leikinn í röð - Romero skúrkurinn
TENGT EFNI

England: Man Utd vann fjórða leikinn í röð - Romero skúrkurinn

Man Utd hefur verið í banastuði síðan Michael Carrick tók við keflinu og kom fjórði deildarsigurinn í röð í dag.

Bryan Mbeumo skoraði frábært mark eftir hornspyrnu beint af æfingasvæðinu og þá innsiglaði Fernandes sigurinn með frábæru skoti framhjá Guglielmo Vicario á lokakaflanum.

„Við þurftum að loka leiknum. Við vissum að við værum með alla stjórn á leiknum, en það getur breyst á augabragði. Þeir voru með marga góða leikmenn fremst á vellinum sem gátu skipt sköpum. Þannig að geta lokað leiknum þarna, þó svo við hefðum getað skorað eitt eða tvö mörk til viðbótar, en það er samt ekki auðvelt gegn lágvörn. Þeir voru mjög þéttir, grimmir og vörðust vel þrátt þó þeir hafi verið manni færri.“

„Sjálfstraustið eykst þegar við vinnum leiki. Það er mikilvægt að viðhalda einbeitingunni og ekki ofgera hlutina. Þetta er mjög gott og notalegt, en við þurfum að halda áfram á sömu braut. Ef þú vinnur ekki næsta og þarnæsta leik þá ferðu aftur í óþægilega stöðu, missir sjálfstraust og trú á öllu sem þú hefur verið að gera fram að þessu.“

„En við höfum verið að gera mjög vel og gert allt sem Michael og þjálfarateymið hafa farið fram á af okkur. Við höfum verið hugrakkir með að taka ábyrgð á sumum augnablikum leiksins og gera það sem þarf til að vinna leiki. Nú er einbeitingin komin á næsta leik. Við erum með fjóra sigra í röð sem er bara flott, en núna verðum við að vinna fimmta leikinn í röð,“
sagði Fernandes.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.