Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 07. mars 2021 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn: Haukar lögðu Víði - Stórsigur hjá KH
Mynd: Hulda Margrét
Haukar höfðu betur gegn Víði þegar liðin áttust við í B-deild Lengjubikars karla í kvöld.

Leikið var á Ásvöllum en það voru gestirnir í Víði sem komust yfir í leiknum. Haukar svöruðu því vel, Aron Freyr Róbertsson jafnaði metin og Aron Skúli Brynjarsson kom þeim yfir.

Frosti Brynjólfsson innsiglaði svo sigur heimamanna en lokatölur 3-1 fyrir Hauka sem eru með fimm stig í öðru sæti riðilsins. Víðir er með eitt stig eftir þrjá leiki.

Í C-deild vann KH stórsigur á Smára. Þetta var fyrsti leikur liðanna í Lengjubiklarnum.

Haukar 3 - 1 Víðir
0-1 Elís Már Gunnarsson
1-1 Aron Freyr Róbertsson
2-1 Aron Skúli Brynjarsson
3-1 Frosti Brynjólfsson

KH 6 - 0 Smári
1-0 Sigfús Kjalar Árnason ('27)
2-0 Jón Örn Ingólfsson ('30)
3-0 Haukur Ásberg Hilmarsson ('35)
4-0 Eyþór Örn Þorvaldsson ('68)
5-0 Sigfús Kjalar Árnason ('71)
6-0 Patrik Írisarson Santos ('77)


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner