Fotbolti.net
14.09.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Myndband: Foden svaraði með handabendingum

Myndband: Foden svaraði með handabendingum
Canon

Mynd: EPA

Phil Foden var í byrjunarliði Manchester City sem heimsótti nágranna sína í liði Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu
TENGT EFNI

Viðurkenna mistök - Enzo Fernandez var í rangstöðu

Foden fékk rautt spjald í fyrri hálfleik þegar staðan var enn markalaus, en liðsfélögum hans tókst að standa uppi sem sigurvegarar þrátt fyrir að spila manni færri. Erling Haaland skoraði eina mark leiksins sem var í raun ólöglegt og hefði aldrei átt að standa, hefur dómarasambandið á Englandi viðurkennt.

Á leið sinni af Old Trafford mætti Foden hópi af stuðningsmönnum Rauðu djöflanna sem tóku að kalla til hans.

Foden svaraði stuðningsmönnum fjandliðsins með einföldum handabendingum. Hann rak upp vísifingurinn á vinstri hendi og myndaði 0 með hægri hendinni, til að minna þá á lokatölur leiksins, 0-1.

Maresca: Bruno Fernandes átti líka að fá rautt
TENGT EFNI

Maresca: Bruno Fernandes átti líka að fá rautt



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.