Arsenal heimsækir C-deildarlið Mansfield Town í 5. umferð ensku bikarkeppninnar á One Call-leikvanginum klukkan 12:15 í dag.
Mansfield hefur kastað Burnley, Sheffield United, Harrogate Town og Accrington Stanley úr leik en þetta er besti árangur liðsins í 51 ár og reynir liðið nú að skella besta liði Englands á tímabilinu.
Arsenal hefur unnið Portsmouth og Wigan til þessa, en byrjunarlið beggja liða eru komin í hús.
Hinn 16 ára gamli Max Dowman verður yngsti leikmaður í sögu Arsenal í bikarnum. Varnarmaðurinn Marli Salmon mun byrja sinn fyrsta leik og þá er Gabriel Jesus fyrirliði liðsins.
Mansfield: Roberts, Knoyle, Oshilaja, Blake-Tracy, Akins, Abbott, Reed, McLaughlin, Russell, T. Roberts, Oates.
Arsenal: Kepa, Salmon, Mosquera, Calafiori, Norgaard, Havertz, Trossard, Madueke, Dowman, Martinelli, Jesus.
???? ???????????????????????????????? ??
— Arsenal (@Arsenal) March 7, 2026
???? Salmon makes first start
???? Dowman becomes our youngest-ever FA Cup player
©? Jesus skippers the side
Let's book our spot in the next round, Gunners ?
???? Presented by @deel
Athugasemdir


