Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 15:46
Snæbjört Pálsdóttir
Einkunnir Íslands - Cecilía bjargaði því sem bjargað varð
PEI
Cecilía Rán Rúnarsdóttir maður leiksins
Cecilía Rán Rúnarsdóttir maður leiksins
Mynd: EPA

Ísland tapaði 2-0 gegn Evrópumeisturum Englands á heimavelli Nottingham Forest, The City Ground í öðrum leik sínum í undankeppni HM í dag.

Í fyrri hálfleik var algjör einstefna á vallarhelmingi Íslands og stelpurnar í raun heppnar að vera einungis 1-0 undir í hálfleik. Varnarleikurinn skánaði í seinni hálfleik en þrátt fyrir það sáu stelpurnar vart til sólar í leiknum og fá færi litu dagsins ljós. Varnarleikurinn var ekki jafn agaður og gegn Spáni. 


Lestu um leikinn: England 2 -  0 Ísland

Cecilía Rán Rúnarsdóttir – 7 (Maður leiksins)
Það var klárlega Cecilíu og slæmum slúttum hjá Englandi að þakka að leikurinn var hreinlega ekki stærri. Varði oft á tíðum mjög vel og í návígum var örugg í sínum aðgerðum.

Sandra María Jessen – 6
Hafði úr litlu að moða fram á við, náði ekki nægilega vel saman við Sædísi og þær voru oft að telja vitlaust á kantinum. Átti hins vegar flottan skalla sem líklega var besta færi Íslands í leiknum.

Glódís Perla Viggósdóttir – 6,5
Var best af varnarmönnunum í dag en hefði kannski þurft afgerandi frammistöðu hjá fyrirliðanum til að peppa sitt lið

Ingibjörg Sigurðardóttir – 6
Var fín í dag og örugg í sínu en ekki jafn mikill kraftur í henni og í Spánarleiknum.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir – 5,5
Var lítið í boltanum, krækti í aukaspyrnu á fínasta stað en annars var lítið að frétta. Var tekin útaf um miðjan seinni hálfleik

Hlín Eiríksdóttir – 5
Sást lítið í leiknum, var lítið í boltanum og tekin út í hálfleik

Hildur Antonsdóttir – 6
Var flott varnarlega en klaufi þegar tækifæri var til þess að bera boltann hratt fram, missti þá oft boltann á vondum stöðum

Ída Marín Hermannsdóttir – 6,5
Var góð varnalega en kom lítið frá henni sóknarlega, ekki jafn ákveðin í þessum leik eins og gegn Spáni. Var tekin útaf um miðjan seinni hálfleik

Guðrún Arnardóttir – 5,5
Átti kaflaskiptan leik, átti mikilvæg varnarmóment þar sem hún var fyrst á boltann og kom fráköstum frá en týndi Stanway í aðdragandanum á seinna markinu.

Sædís Rún Heiðarsdóttir - 6,5
Var flott í sínu hlutverki, er áræðin og getur spilað boltanum undir pressu en náði ekki nægilega vel saman við Söndru svo að nokkrir hættulegir krossar litu dagsins ljós frá Englendingum

Sveindís Jane Jónsdóttir – 6,5
Reyndi að vera í boltanum fram á við en fékk lítið úr að moða, átti frábæra fyrirgjöf á kollinn á Söndru, óheppnar að ná ekki að setjan þar.

Varamenn Íslands:

('46) María Catharina Ólafsdóttir Gros– 6
Kom inn í hálfleik, hjálpaði vel varnarlega og átti þátt í að loka betur á hættulegar fyrirgjafir frá Englandi.

('63) Emilía Kiær Ásgeirsdóttir – 7
Kom inn á af miklum krafti, var vinnusömu, baráttuglöð og kom sér strax inn í leikinn.

('63) Alexandra Jóhannsdóttir – 6
Kom vel inn á miðjuna, var yfirveguð og solid varnarlega

('76) Diljá Ýr Zomer – 5,5
Hafði eins og aðrir leikmenn fram á við úr mjög litlu að moða, komst lítið í boltann.

('89) Berglind Rós Ágústsdóttir – spilaði ekki nóg til að fá einkunn


Athugasemdir
banner
banner