Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   lau 07. mars 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Fjórða viðureign Newcastle gegn City á árinu
Mynd: EPA
Það eru þrír leikir á dagskrá í enska bikarnum í dag þar sem stórveldi Arsenal, Chelsea og Manchester City eiga útileiki.

Arsenal heimsækir Mansfield Town í hádegisleiknum og svo fer Chelsea til Wales að spila við sögufrægt félag Wrexham sem hefur verið í mikilli sókn á undanförnum árum.

Að lokum eigast Newcastle United og Man City við í kvöldleiknum sem er jafnframt stórleikur dagsins.

Liðin eru að mætast í fjórða sinn á árinu en hingað til hefur City unnið allar þrjár innbyrðisviðureignirnar, samanlagt 7-2. Newcastle vann þó viðureign liðanna þegar þau mættust í lok nóvember.

Leikir dagsins
12:15 Mansfield Town - Arsenal
17:45 Wrexham - Chelsea
20:00 Newcastle - Man City
Athugasemdir
banner
banner
banner