Mansfield Town 1 - 2 Arsenal
0-1 Noni Madueke ('41 )
1-1 Will Evans ('50 )
1-2 Eberechi Eze ('66 )
0-1 Noni Madueke ('41 )
1-1 Will Evans ('50 )
1-2 Eberechi Eze ('66 )
Arsenal er komið áfram í 8-liða úrslit ensku bikarkeppninnar en þurfti svo sannarlega að hafa fyrir hlutunum er liðið lagði C-deildarlið Mansfield Town að velli, 2-1, á One Call-leikvanginum í Mansfield í dag.
Mikel Arteta gerði fjölmargar breytingar á liðinu en Arsenal var án Gabriel og William Saliba, og þá voru leikmenn eins og Martin Ödegaard og Bukayo Saka á bekknum.
Það tók Arsenal rúmar fjörutíu mínútur að komast í forystu gegn baráttuglöðum Mansfield-mönnum. Noni Madueke fékk boltann í teignum og átti laglegt skot sem hafnaði efst í hægra horninu.
Marli Salmon, sem var að byrja sinn fyrsta leik með Arsenal, átti hræðilega sendingu til baka snemma í síðari hálfleiknum. Will Evans lék síðan á Cristhian Mosquera áður en hann setti boltann undir Kepa í markinu.
Arsenal fékk nokkur færi í kjölfarið og náði að gera sigurmarkið þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir er varamaðurinn Eberechi Eze hamraði boltanum í netið úr miðjum teignum.
Það dugði til sigurs og er Arsenal komið áfram í 8-liða úrslit sem á því enn möguleika á að vinna fernuna. Liðið er einnig komið í úrslit deildabikarsins, á toppnum í ensku úrvalsdeildinni og er í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir


