Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 20:33
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Chelsea þurfti framlengingu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Wrexham 2 - 4 Chelsea
1-0 Toby Samuel Smith ('18 )
1-1 Arthur Okonkwo ('40 , sjálfsmark)
2-1 Callum Doyle ('78 )
2-2 Josh Acheampong ('82 )
2-3 Alejandro Garnacho ('96 )
2-4 Joao Pedro ('125)
Rautt spjald: George Dobson, Wrexham ('93)

Wrexham tók á móti stórveldi Chelsea í 16-liða úrslitum enska bikarsins í dag og úr varð hörkuslagur. Liam Rosenior þjálfari Chelsea gerði mikið af breytingum til að hvíla lykilmenn fyrir komandi átök í Meistaradeild Evrópu og ensku úrvalsdeildinni og lentu lærlingar hans í vandræðum í Wales.

Fyrri hálfleikurinn var jafn og afar tíðindalítill en Sam Smith náði forystunni fyrir heimamenn þegar hann slapp í gegn eftir langa sendingu upp völlinn á 18. mínútu.

Chelsea hélt boltanum langstærsta hluta leiksins en átti í miklum erfiðleikum með að skapa færi. Alejandro Garnacho náði þó að komast innfyrir vörnina undir lok fyrri hálfleiks en varnarmaður Wrexham bjargaði marktilraun hans á marklínu. Boltinn skaust í bakið á Arthur Okonkwo markverði sem lá í jörðinni og hrökk þaðan óheppilega aftur til baka og í netið, svo Okonkwo fær skráð sjálfsmark. Staðan 1-1 í hálfleik.

Heimamenn í Wrexham mættu tvíefldir til leiks í síðari hálfleikinn og voru sterkari aðilinn. Þeir sköpuðu hættulegar stöður og góð færi og endurheimti Callum Doyle forystuna á 78. mínútu. Hann skoraði laglegt mark þegar hann náði að pota hælnum í marktilraun Josh Windass til að láta boltann breyta um stefnu.

Gestirnir í liði Chelsea voru fljótir að bregðast við og skoraði miðvörðurinn Josh Acheampong frábært jöfnunarmark eftir slæm mistök George Dobson sem tapaði boltanum á stórhættulegum stað. Dobson reyndist svo skúrkurinn þegar hann fór í óþarfa og hættulega tæklingu í uppbótartímanum og fékk beint rautt spjald fyrir.

Lokatölur eftir venjulegan leiktíma urðu 2-2 og því fór leikurinn í framlengingu. Þar nýttu gestirnir liðsmuninn til að taka forystuna á 96. mínútu eftir frábæra fyrirgjöf frá Dario Essugo. Þar var Garnacho aftur á ferðinni, hann laumaði sér á fjærstöngina með vel tímasettu hlaupi og skoraði af stuttu færi.

Tíu leikmenn Wrexham börðust eins og ljón í framlengingunni og voru óheppnir að jafna ekki metin. Þeir sköpuðu góð færi og áttu hættulegar marktilraunir en boltinn rataði ekki í netið. Þegar hann rataði loks í netið var ekki dæmt mark vegna afar naumrar rangstöðu.

Þeim tókst ekki að skora, heldur kom Joao Pedro inn af bekknum og innsiglaði sigur Chelsea eftir laglegt einstaklingsframtak í uppbótartíma framlengingar. Lokatölur urðu 2-4 fyrir Chelsea sem tryggir sér sæti í 8-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner