Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 21:53
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Varalið City með yfirburði í Newcastle
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Newcastle 1 - 3 Manchester City
1-0 Harvey Barnes ('18 )
1-1 Savinho ('39 )
1-2 Omar Marmoush ('47 )
1-3 Omar Marmoush ('65 )

Pep Guardiola þjálfari Manchester City gerði tíu breytingar á byrjunarliðinu sem gerði jafntefli við Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku.

Man City heimsótti Newcastle í 16-liða úrslitum enska bikarsins og mætti gífurlega sterkt varalið til leiks. Heimamenn í Newcastle byrjuðu leikinn þó betur og náði Harvey Barnes forystunni með verðskulduðu marki á átjándu mínútu. Barnes slapp í gegn eftir laglega stungusendingu frá Sandro Tonali og kláraði hann færið meistaralega.

Man City óx sífellt meira inn í leikinn og náði að jafna metin á 39. mínútu, þegar Savinho skoraði skrýtið mark af stuttu færi. Hann hreyfði varla lappirnar og fékk lága fyrirgjöf í sig svo boltinn lak yfir marklínuna.

Strax í upphafi síðari hálfleiks tók Omar Marmoush til sinna mála og skoraði af stuttu færi til að taka forystuna. Hann skoraði svo aftur á 65. mínútu með frábæru skoti við vítateigslínuna. Til gamans má geta að 7 af 14 mörkum Marmoush fyrir City hafa komið gegn Newcastle.

Man City stjórnaði ferðinni í síðari hálfleiknum og hefði getað bætt fleiri mörkum við, en gerði það ekki. Lokatölur urðu 1-3 eftir frábæra frammistöðu hjá varamönnunum í ógnarsterkum leikmannahópi City.

Þetta var fjórða innbyrðisviðureign Newcastle og Man City á þessu ári og í fjórða sinn sem City hefur betur. Liðin mættust tvisvar í undanúrslitum deildabikarsins og einu sinni í deild fyrir bikarleik kvöldsins.

Newcastle hafði þó betur í innbyrðisviðureign liðanna í lok nóvember.
Athugasemdir
banner
banner