Það eru þónokkur Íslendingalið búin að mæta til leiks víða um Evrópu í dag og skoraði Hilmir Rafn Mikaelsson í sigri Noregsmeistara Viking.
Viking heimsótti Bjarg í 16-liða úrslitum norska bikarsins og skoraði Hilmir Rafn fyrsta mark leiksins á 37. mínútu. Honum var svo skipt af velli á 69. mínútu og urðu lokatölur 0-3. Viking er því búið að tryggja sér farmiða í 8-liða úrslitin.
Í efstu deild í Hollandi var Brynjólfur Andersen Willumsson í byrjunarliði Groningen í sigri gegn Ajax. Brynjólfur spilaði fyrri hálfleikinn og var partur af þrefaldri skiptingu í hálfleik.
Staðan var 1-1 í leikhlé en liðsfélagar Brynjólfs afgreiddu stórveldi Ajax í síðari hálfleiknum, svo lokatölur urðu 3-1. Groningen er í harðri baráttu um sæti í Sambandsdeildinni fyrir næstu leiktíð á meðan Ajax er að berjast um sæti í Meistaradeildinni.
Í efstu deild skoska boltans lék Eyþór Martin Björgólfsson seinni hálfleikinn í tapi Motherwell gegn Dundee FC. Tapið var afar óheppilegt þar sem Motherwell sýndi flotta frammistöðu og fékk mikið af góðum færum.
Motherwell gat reynt að blanda sér í toppbaráttuna með sigri en situr þess í stað eftir í fjórða sæti.
Í Danmörku varði Rúnar Alex Rúnarsson mark FC Kaupmannahafnar í undanúrslitum bikarsins. Rúnar Alex átti góðan leik og hjálpaði FCK að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum.
Viktor Bjarki Daðason var ekki í hóp en Youssoufa Moukoko byrjaði í fremstu víglínu í hans stað og skoraði bæði mörk FCK í 1-2 sigri. Kaupmannahöfn mætir annað hvort AGF eða FC Midtjylland í úrslitaleiknum.
Ísak Andri Sigurgeirsson var ónotaður varamaður í liði Viborg.
Adam Ingi Benediktsson hélt þá markinu hreinu er AB frá Kaupmannahöfn lagði Hellerup að velli. Lokatölur urðu 3-0 og er AB í góðri stöðu í titilbaráttu þriðju efstu deildar danska boltans. AB trónir þar á toppinum með 39 stig eftir 17 umferðir, fjögurra stiga forystu á Næstved.
Valgeir Lunddal Friðriksson var þá ekki með vegna meiðsla í sigri Fortuna Düsseldorf gegn Nürnberg í næstefstu deild í Þýskalandi. Þetta er annar sigurinn í röð hjá Düsseldorf sem er núna sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Lúkas Petersson markvörður varaliðs Hoffenheim fékk að lokum fjögur mörk á sig í þriðju efstu deild í Þýskalandi. Hoffenheim II tapaði á heimavelli gegn Essen og siglir lygnan sjó með 35 stig eftir 28 umferðir.
Bjarg 0 - 3 Viking
0-1 Hilmir Rafn Mikaelsson ('37)
0-2 H. Haugen ('84)
0-3 R. Alte ('87)
Groningen 3 - 1 Ajax
Dundee FC 2 - 1 Motherwell
Viborg 1 - 2 FC Kaupmannahöfn
AB 3 - 0 Hellerup
Nurnberg 0 - 1 Dusseldorf
Hoffenheim II 2 - 4 Essen
Athugasemdir

