Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Evrópumeisturum Englands, 2-0, í annarri umferð í undankeppni heimsmeistaramótsins á City Ground-leikvanginum í Nottingham í dag.
Leikurinn var einstefna meira og minna allan leikinn. Enska liðið óð í færum í fyrri hálfleiknum og skoraði þá fyrra markið er Lucy Bronze stangaði fyrirgjöf Lauren James yfir Cecilíu Rán Rúnarsdóttur og í netið.
Lauren Hemp fékk nokkur færi til að bæta við í fyrri og Bronze tækifæri til að gera annað mark sitt, en tréverkið kom íslenska liðinu nokkrum sinnum til bjargar.
Staðan í hálfleik var 1-0 og íslenska liðið ekkert að ógna fram á við, og aðallega að eyða mikilli orku í að verjast firnasterkum Englendingum.
Ísland fékk tækifæri til að jafna metin þegar rúmar fimmtán mínútur voru búnar af þeim síðari er Sandra María Jessen skallaði fyrirgjöf Sveindísar Jane í átt að marki en Hannah Hampton, sem hafði ekkert að gera allan leikinn, var vel á verði og náði að blaka boltanum aftur fyrir í hornspyrnu.
Nauðvörn íslenska liðsins hélt áfram eftir það og var það ekki hvort heldur hvenær annað markið kæmi. Það kom á 78. mínútu er Bronze kom með laglega fyrirgjöf inn á teiginn á Georgiu Stanway sem skoraði með viðstöðulausu skoti, algerlega óverjandi fyrir Cecilíu í markinu.
Þolinmæðisvinna hjá Englendingum í dag og sigur þeirra aldrei í hættu. England er með fullt hús stiga í C-riðli A-deildar en Ísland án stiga eftir tvo leiki.
Vinnuframlag íslenska liðsins var aðdáunarvert og gott að máta sig við þær allra bestu.
Ísland fær tvo heimaleiki í næsta mánuði þar sem það getur hefnt fyrir tapið gegn Englandi. Fyrst mætir það Úkraínu þann 14. apríl og síðan Englendingum aðeins fjórum dögum síðar.
Athugasemdir


