Það er aragrúi af leikjum á dagskrá í dag og í kvöld í undankeppni Evrópuþjóða fyrir HM á næsta ári.
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu eiga þar afar erfiðan útileik við ríkjandi Evrópumeistara Englands eftir að hafa tapað 3-0 fyrir heimsmeisturunum frá Spáni í fyrstu umferð.
Englendingar eru í stuði og rúlluðu yfir Úkraínu í fyrstu umferð. Þær ensku skoruðu sex mörk á útivelli til að tryggja sigurinn.
Leikurinn hefst rétt eftir hádegi á City Ground leikvanginum í Nottingham og er fyrsti leikur dagsins í undankeppninni.
Noregur spilar við Þýskaland í stórleik í dag áður en Danmörk heimsækir Ítalíu.
Úkraína spilar við Spán og svo eiga Frakkland, Holland og Slóvenía heimaleiki. Þá eru einnig leikir á dagskrá í B- og C-deildum undankeppninnar.
Undankeppni HM - A deild
12:30 England - Ísland
15:00 Serbía - Svíþjóð
17:00 Noregur - Þýskaland
17:00 Úkraína - Spánn
17:15 Ítalía - Danmörk
18:00 Slóvenía - Austurríki
19:45 Holland - Írland
20:10 Frakkland - Pólland
Undankeppni HM - B deild
12:30 Finnland - Lettland
16:00 Belgía - Ísrael
16:00 Portúgal - Slóvakía
16:30 Wales - Svartfjallaland
17:00 Albanía - Tékkland
17:00 Skotland - Lúxemborg
18:00 Malta - Sviss
19:00 N-Írland - Tyrkland
Undankeppni HM - C deild
09:00 Kasakstan - Belarús
12:00 Bosnía - Liechtenstein
12:00 Kýpur - Rúmenía
13:30 Ungverjaland - Aserbaídsjan
14:00 N-Makedónía - Andorra
15:00 Litháen - Eistland
16:00 Króatía - Kósovó
18:00 Gíbraltar - Búlgaría
18:30 Grikkland - Færeyjar
Athugasemdir

