Pep Guardiola, stjóri Manchester City á Englandi, gaf vísbendingu um það að hann gæti verið áfram með liðið á næstu leiktíð er hann ræddi við fjölmiðla fyrir bikarleikinn gegn Newcastle United.
Enskir miðlar hafa greint frá því að þetta gæti verið síðasta tímabil Guardiola hjá Man City.
Guardiola hefur verið hjá félaginu frá 2016 og unnið fimmtán titla, en Man City virðist enn óklárað verkefni í hans huga og gæti vel farið svo að hann verði áfram með liðið á næstu leiktíð.
„Við verðum að verjast betur á sumum sviðum. Raunveruleikinn er samt sá að við erum ekki enn með fullmótað lið til þess veita öðrum samkeppni.“
„Það eru margar breytingar hjá okkur og við erum í miðju ferli. Við getum lært hraðar til þess að fullvissa það að við töpum engu og mætt í síðustu mánuðina til þess að eiga möguleika (á að vinna eitthvað).“
„Ég er samt nokkuð viss um að við verðum betri án æsta tímabili. Ég hef engar efasemdir um það,“ sagði Guardiola.
Man City mætir Newcastle United í enska bikarnum í kvöld, en sigurvegarinn fer áfram í 8-liða úrslit. Man City hefur tvisvar orðið enskur bikarmeistari undir stjórn Guardiola.
Athugasemdir


