Fotbolti.net
07.06.15 - 14:00
Arnar Geir Halldórsson

Leverkusen kaupir Papadopoulos (Staðfest)

Kyriakos Papadopoulos

Kyriakos Papadopoulos

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Bayer Leverkusen hefur gengið frá kaupum á Kyriakos Papadopoulos frá Schalke en þessi gríski varnarmaður var á láni hjá Leverkusen á nýafstaðinni leiktíð.
Papadopoulos spilaði 14 leiki fyrir Leverkusen í Bundesligunni í vetur en meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum. Þrátt fyrir það hefur félagið nú ákveðið að punga út tæpum 7 milljónum evra fyrir leikmanninn.

Hann gerir fimm ára samning við Leverkusen en Papadopoulos er 23 ára gamall.

„Ég er ánægður að þetta gekk upp. Ég hlakka til framtíðarinnar með þessu frábæra liði og ég held að við getum bætt okkur mikið\", sagði Papadopoulos við undirskriftina.

Papadopoulos þótti á sínum tíma einn efnilegasti varnarmaður Evrópu en hann var aðeins 15 ára gamall þegar hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir gríska stórveldið Olympiakos.

Leverkusen lauk keppni í 4.sæti og mun því fara í forkeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili.

Heimild: Bayer Leverkusen

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.