Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka, hrósaði Gabríel Aroni Sævarssyni, sem er á láni hjá félaginu frá Breiðabliki, eftir sigur liðsins gegn Hvíta riddaranum á föstudaginn.
Lestu um leikinn: Hvíti riddarinn 0 - 2 Haukar
Gabríel Aron (2006) er uppalinn Keflvíkingur en han gekk til liðs við Breiðablik í fyrra. Hann var á láni hjá ÍR í Lengjudeildinni í fyrra og spilaði sjö leiki. Hann er nú í 2. deild með Haukum.
„Hann er búinn að koma ótrúlega vel inn í þetta hjá okkur, með mikinn kraft og áræðni. Við erum hrikalega ánægðir að hafa fengið hann til okkar og erum heppnir að vera með hann," sagði Gaui.
Gabríel hefur spilað fimm leiki og skorað tvö mörk. Haukar eru á toppnum í 2. deild með 15 stig eftir sex umferðir.





