Fotbolti.net
25.07.26 - 20:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aron Einar farinn frá Þór - Fer aftur til Katar

Aron Einar farinn frá Þór - Fer aftur til Katar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Einar Gunnarsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net farinn frá Þór en hann er búinn að semja við lið í Katar.
Aron Einar stoppaði stutt hér heima en hann var kynntur til leiks hjá Þór fyrr í þessum mánuði og spilaði sinn fyrsta og eina leik í 2-1 sigri á Víkingi sem var fyrsta tap Íslandsmeistarana í deildinni í sumar.

„Ég er búinn að skrifa undir hjá Þór og hugur minn er hér. En þeir (ráðamenn Þórs) vita að staðan mín er skrítin og ég gæti verið farinn eftir tvær vikur, en ég gæti klárað tímabilið. Það eru einhverjar þreifingar í gangi, en ekkert konkrít. Ég er leikmaður Þórs eins og staðan er í dag og vonandi verður það bara þannig," sagði Aron eftir leikinn gegn Víkingi.

Aron spilaði með Al-Arabi í Katar frá 2019–2024 áður en hann stoppaði stutt hjá Þór. Hann sneri aftur til Katar og samdi við Al-Gharafa og er nú að fara í þriðja sinn.

Aron Einar fer yfir stöðuna: Gæti verið farinn eftir tvær vikur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.