25.07.26 - 18:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orri Steinn skoraði gegn Úlfunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Orri Steinn Óskarsson var á skotskónum þegar Real Sociedad mætti Wolves í æfingaleik í dag.
Wolves komst yfir en Orri Steinn skoraði jöfnunarmarkið eftir rúmlega hálftíma leik. Sociedad skoraði sigurmark í seinni hálfleik, lokatölur 2-1.

Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson voru í eldlínunni með AGF í fyrstu umferð dönsku deildarinnar. Liðið fékk Bröndby í heimsókn og leiknum lauk með 1-1 jafntefli.
MIkael Neville var í byrjunarliðinu en Tómas kom inn á undir lok leiksins.
Mikael Egill Ellertsson var í byrjunarliði Genoa sem gerði 2-2 jafntefli gegn L.R. Vicenza í æfingaleik. Þá var Hákon Arnar Haraldsson í byrjunarliði Lille sem tapaði 2-1 gegn Royale Union SG.