25.07.26 - 18:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikar kvenna: Grindavík/Njarðvík í úrslit eftir öruggan sigur - Sjáðu mörkin

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fram 0 - 3 Grindavík/Njarðvík
0-1 Hannah McLaughlin ('19 )
0-2 Ellie Coffield ('51 )
0-3 Natasha Moraa Anasi ('76 )
Lestu um leikinn
0-1 Hannah McLaughlin ('19 )
0-2 Ellie Coffield ('51 )
0-3 Natasha Moraa Anasi ('76 )
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn: Fram 0 - 3 Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík er komið í úrslit Mjólkurbikarsins eftir öruggan sigur á Fram í undanúrslitum í kvöld. Grindavík/Njarðvík mætir Þrótti í úrslitum.
Hannah McLaughlin kom Grindavík/Njarðvík yfir með góðu skoti. Natasha Anasi var nálægt því að tvöfalda forystu liðsins en skallaði rétt framhjá.
Grindavík/Njarðvík var með eins marks forystu í hálfleik en Ellie Coffield tvöfaldaði forystu liðsins snemma í seinni hálfleik.
Natasha innsiglaði sigur liðsins þegar hún skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Eins og fyrr segir mætir Grindavík/Njarðvík Þrótti í úrslitum. Úrslitaleikurinn fer fram þann 12. september á Laugardalsvelli.