Kári 0 - 0 Kórdrengir
Kári tók á móti Kórdrengjum í síðasta leik kvöldsins í 2. deild karla og tókst heimamönnum að stöðva sigurgöngu Kórdrengja.
Kórdrengir voru búnir að vinna fyrstu þrjá leiki deildartímabilsins 3-0 á meðan Kári var aðeins með eitt stig og átta mörk fengin á sig.
Í kvöld héldu Káramenn óvænt hreinu og eru fyrsta lið 2. deildar til að stöðva Kórdrengina í ár.
Kórdrengir eru áfram á toppi deildarinnar, með tíu stig eftir fjórar umferðir. Þeir eru með eins stigs forystu á Selfoss og Hauka.
Kórdrengir eiga útileik gegn Haukum í næstu umferð og svo heimsækja þeir Selfoss í þarnæstu.
Það tekur stöðutöfluna tíma að uppfæra sig.
Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir