22.09.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dómarinn í skammarkrókinn eftir Madrídarslaginn

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Dómarinn Ortiz Arias, sem dæmdi Madrídarslaginn um helgina, er á leið í bann vegna frammistöðu sinnar í leiknum.
Spænski miðillinn Archivo VAR, sem sérhæfir sig í umdeildum dómaraákvörðunum, segir að hann eigi yfir höfði sér að minnsta kosti tveggja leikja bann.

TENGT EFNI
Ósáttur Mourinho prentaði út myndir og mætti með á fréttamannafund
Real Madrid var mjög ósátt eftir leikinn sem endaði með 2-1 sigri Atletico Madrid en öll mörkin komu í seinni hálfleik. Real Madrid vildi að tveir leikmenn Atletico yrðu reknir af velli í fyrri háflleik.
Jose Mourinho mætti með útprentað blað á fréttamannafund eftir leikinn af atvikunum.
„Bæði þessi tilfelli áttu klárlega að vera rautt spjald. Miðað við hversu erfitt það var fyrir okkur að spila 11 gegn 10 síðar í leiknum getum við ímyndað okkur hvernig það hefði verið að spila 50 mínútur 11 gegn 9."
Staðan var markalaus þegar Dean Huijsen, varnarmaður Real Madrid, fékk rautt spjald á 52. mínútu. Atletico notfærði sér svo liðsmuninn og vann 2-1 sigur.