22.09.26 - 15:23
Elvar Geir Magnússon
Heimir á hitasvæði - Mótmælin magnast fyrir umdeildasta leik fótboltans

Heimir Hallgrímsson ásamt aðstoðarmanni sínum, John O'Shea.

Mynd: EPA

Frá landsleik Íslands gegn Ísrael á Laugardalsvelli 2022.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frá mótmælum á leik Víkings og Hapoel Be'er Sheva frá Ísrael í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Írland, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, mun á sunnudag leika gríðarlega umdeildan leik gegn Ísrael í Þjóðadeildinni. Leikið verður á hlutlausum velli í Debrecen í Ungverjalandi og engir miðar seldir til írskra stuðningsmanna.
Á Írlandi hafa margir kallað eftir því að Írland sniðgangi komandi leiki við Ísrael en liðin mætast aftur 4. október og þá aftur á hlutlausum velli. Skráður heimaleikur Írlands verður spilaður í bænum Backa Topola í Serbíu.
Um leið og Írland og Ísrael drógust saman í febrúar var þrýst á írska fótboltasambandið að sniðganga leikina vegna hernaðaraðgerða Ísraela á Gaza-svæðinu. Þau mótmæli hafa síðan magnast eftir því sem nær hefur dregið leikjunum.

Leikirnir sýndir án lýsenda og umfjöllunar
Áhorfendur köstuðu tennisboltum inn á völlinn í vináttulandsleik gegn Katar í maí. Boltarnir voru merktir palestínska fánanum en þetta gerðu stuðningsmennirnir til að mótmæla komandi leikjum gegn Ísrael.

Innan írska fótboltasambandsins var haldin atkvæðagreiðsla þar sem 75 meðlimir kusu að spila leikina og 32 kusu að sniðganga. Sambandið sagði að það hefði slæm áhrif til lengri tíma litið að spila ekki leikina ásamt mögulegum refsingum UEFA og hugsanlegu tekjutapi.
Írska ríkissjónvarpið RTÉ, sem er rétthafi af landsleikjum Írlands í Þjóðadeildinni, hefur tilkynnt að leikirnir verði sýndir án lýsenda og engin umfjöllun í kringum þá. Að auki mun það ekki taka inn neina auglýsingatekjur heldur aðeins uppfylla samningsskyldur með því að sýna leikina.
Breyting á leikstað ekki minnkað óánægjuna
Ísrael þarf að spila heimaleiki sína á hlutlausum velli og þar hefur Ungverjaland orðið fyrir valinu en sterk stjórnmálatengsl eru milli landanna og Ungverjar verið tilbúnir að uppfylla skyldur um löggæslu og umgjörð. Ísland mætti einmitt Ísrael í Ungverjalandi 2024.
Í sumar ákvað svo fótboltasamband Írlands að færa heimaleik sinn á hlutlausan völl en samkvæmt fréttum hafði það áhyggjur af því að mótmæli gætu komið í veg fyrir að hægt væri að leika í Dublin. Ekki var gefin skýring á því að Backa Topola varð fyrir valinu en með því að velja afskekktan bæ í Serbíu þá auðveldar það að uppfylla öryggiskröfur og minnkar líkur á mótmælum.
En þetta val minnkaði óánægjuna ekki. Á síðasta ári sagði Marko Duric, utanríkisráðherra Serbíu, að Ísraela væru einir nánustu vinir Serba og samstarfsaðilar. Serbía hefur einnig keypt hergögn, þar á meðal dróna og eldflaugar, frá Ísrael á undanförnum árum.
Hátt í 200 mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan liðshótel Írlands í gærkvöldi og yfir 160 írskir íþróttamenn skrifuðu undir opinberan undirskriftarlista þar sem krafist var að írska landsliðið myndi sniðganga leikina gegn Ísrael.

Hitnaði frekar í kolunum eftir ummæli Heimis
„Því miður höfum við ekki enn fundið lækningu við heimsku, fáfræði og hræsni sem þjálfari Írlands sýnir," sagði í yfirlýsingu ísraelska fótboltasambandsins sem gefin var út í gær. Ummæli Heimis á fréttamannafundi á dögunum fóru mjög illa í Ísraela.
„Við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael,“ hafði Heimir sagt þegar hann var spurður út í það að mæta Ísraelum.
Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna komst að þeirri niðurstöðu á síðasta ári að stríð Ísraels á Gaza sé þjóðarmorð. Ísrael hefur hinsvegar ítrekað hafnað ásökunum um þjóðarmorð.

Írland sýnt Palestínu mikinn stuðning
Írland hefur verið meðal þeirra Evrópulanda sem hafa sýnt mestan stuðning við Palestínumenn frá því að hernaðarsókn Ísraelsmanna á Gaza hófst í október 2023.
Í maí 2024 viðurkenndi Írland formlega sjálfstæði Palestínu. Írland hefur sniðgengið Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, frá 2025 vegna þátttöku Ísraels, var fyrsta ESB-ríkið til að banna vörur frá ísraelskum landtökubyggðum og hefur gefið út ferðabönn fyrir ráðherra ísraelsku ríkisstjórnarinnar.
Írland er ekki eina þjóðin sem hefur lýst yfir tregðu til að mæta Ísrael í alþjóðlegum fótbolta. Árið 2024 neitaði Belgía að taka á móti Ísrael á heimavelli og leikurinn fór í staðinn fram í Debrecen. Forseti norska fótboltasambandsins lýsti því yfir að Ísrael ætti að vera bannað frá Evrópukeppnum og Tyrkland fylgdi í kjölfarið.

TENGT EFNI
Köstuðu tennisboltum inn á völlinn í mótmælaskyni

Mótmæli við hótel Heimis og írska liðsins
Hitnaði frekar í kolunum eftir ummæli Heimis
„Því miður höfum við ekki enn fundið lækningu við heimsku, fáfræði og hræsni sem þjálfari Írlands sýnir," sagði í yfirlýsingu ísraelska fótboltasambandsins sem gefin var út í gær. Ummæli Heimis á fréttamannafundi á dögunum fóru mjög illa í Ísraela.
„Við erum ekki að spila með þjóðarmorði, við erum að spila gegn þjóðarmorði. Við erum að spila gegn Ísrael, við erum ekki að spila með Ísrael,“ hafði Heimir sagt þegar hann var spurður út í það að mæta Ísraelum.
Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna komst að þeirri niðurstöðu á síðasta ári að stríð Ísraels á Gaza sé þjóðarmorð. Ísrael hefur hinsvegar ítrekað hafnað ásökunum um þjóðarmorð.

TENGT EFNI
„Heimska og hræsni“ - Heimir fær að heyra það frá ísraelska sambandinu
Írland sýnt Palestínu mikinn stuðning
Írland hefur verið meðal þeirra Evrópulanda sem hafa sýnt mestan stuðning við Palestínumenn frá því að hernaðarsókn Ísraelsmanna á Gaza hófst í október 2023.
Í maí 2024 viðurkenndi Írland formlega sjálfstæði Palestínu. Írland hefur sniðgengið Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, frá 2025 vegna þátttöku Ísraels, var fyrsta ESB-ríkið til að banna vörur frá ísraelskum landtökubyggðum og hefur gefið út ferðabönn fyrir ráðherra ísraelsku ríkisstjórnarinnar.
Írland er ekki eina þjóðin sem hefur lýst yfir tregðu til að mæta Ísrael í alþjóðlegum fótbolta. Árið 2024 neitaði Belgía að taka á móti Ísrael á heimavelli og leikurinn fór í staðinn fram í Debrecen. Forseti norska fótboltasambandsins lýsti því yfir að Ísrael ætti að vera bannað frá Evrópukeppnum og Tyrkland fylgdi í kjölfarið.
Heimild: BBC