22.09.26 - 13:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einn heitasti bitinn á markaðnum - „Veit að það er áhugi"

Hjálpaði Keflavík upp úr Lengjudeildinni í fyrra og hefur spilað frábærlega í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Stefan Alexander Ljubicic er algjör lykilmaður í liði Keflavíkur sem hefur komið langflestum sem fylgjast með Bestu deildinni mikið á óvart í sumar.
Stefan er markahæsti leikmaður liðsins, hefur skorað ellefu mörk í sumar og er að eiga sitt besta tímabil á ferlinum.

Hann er með lausan samning og ræddi um það við Fótbolta.net. Hvernig ertu að hugsa stöðuna?
„Ég hugsa út í allt. Ég er búinn að fara út og komið heim. Hugurinn er ennþá á því að fara út í atvinnumennsku, en fara þá í eitthvað almennilegt sem ég sé almennilega framtíð í. Það er allt opið hjá mér, ætla klára tímabilið vel og svo kemur í ljós hvað er í boði, bæði hér heima og úti."
„Ég er kominn á þann aldur að ég hugsa aðeins lengra fram í tímann. Ég er með lausan samning og veit að það er áhugi einhvers staðar. Ég er ekki að ýta á neitt, er að spila vel og finnst ég vera í kjörstöðu. Ég ætla að klára tímabilið og svo koma hlutirnir í ljós. Ég er búinn að tala við mína menn og við erum allir sammála um að klára tímabilið, hugsa um Keflavík og ná í fleiri mörk og fleiri stig fyrir félagið. Það er fyrsta markmiðið eins og staðan er núna."
„Ég upplifi áhuga frá Keflavík á áframhaldandi samstarfi. Ég finn fyrir ákveðnu trausti, er einn af leiðtogunum í liðinu. Ég er héðan og er búinn að gera helling síðan ég kom. Ég kom fyrir tímabilið í Lengjudeildinni, náðum markmiðinu að komast upp og svo náum við að halda okkur í deildinni núna. Ég er búinn að ná mínum markmiðinu með liðinu og verið með í að koma því á þann stað sem það er á í dag."
„Ég held að allir séu í sjokki með þennan árangur sem er bara geggjað. Það gerir mig og aðra leikmenn í liðinu betri."
„Það eru fleiri farnir að horfa til okkar. Davíð (Helgi Aronsson) fer til Lyngby, (Þorlákur Breki) Baxter fer til Noregs, Eiður (Orri Ragnarsson) keyptur í Víkingi og Ásgeir (Orri Magnússon) er einn besti markmaður í deildinni finnst mér. Það segir helling. Við erum ekki bara öflugt lið heldur líka með sterka einstaklinga. Það eru jákvæðir punktar alls staðar," segir Stefan.
Stefan hefur á ferlinum spilað með Keflavík, var á mála hjá Brighton og var þaðan lánaður til Bognor Regis Town og Eastbourne Borough, kom heim og lék með Grindavík, fór til Riga, lék svo með HK, KR og Keflavík áður en hann fór til Skövde 2024 og sneri eftir það aftur heim til Keflavíkur. Hann lék á sínum tíma 17 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim fimm mörk.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 24 | +50 | 59 |
| 2 | KR | 24 | +28 | 47 |
| 3 | Fram | 24 | +12 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 24 | +1 | 33 |
| 5 | ÍA | 24 | -3 | 33 |
| 6 | Keflavík | 24 | -8 | 29 |