Fotbolti.net
07.07.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vestri á leið til Bakú - „Eins gott og það getur orðið"

Bikarmeistararnir í Vestra spila Evrópuleik á fimmtudag í Aserbaísjan.

Bikarmeistararnir í Vestra spila Evrópuleik á fimmtudag í Aserbaísjan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Liðið flaug í morgun til Frankfurt, stoppar þar í þrjá tíma og svo er beint flug til Bakú þar sem þeir lenda í kvöld á fínum tíma. Það er eiginlega eins gott og það getur orðið. Við erum svo nokkrir sem flugum til London í dag, stoppum í tíu tíma og tökum næturflug til Bakú," segir Samúel Samúelsson. meðstjórnandi í stjórn fótboltadeildar Vestra, sem staddur er í London.

Framundan er fyrsti Evrópuleikur í sögu félagsins en Vestri mætir Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudag. Fyrri leikurinn fer fram í Bakú, höfuðborg Aserbaísjan klukkan 16:00 að íslenskum tíma og sá seinni fer fram á heimavelli Þróttar í Laugardal annan fimmtudag.
Fyrirliði Vestra um Evrópudeildina: Þurfum sennilega að vera svolítið heppnir
TENGT EFNI

Fyrirliði Vestra um Evrópudeildina: Þurfum sennilega að vera svolítið heppnir

„Allur leikmannahópurinn, þjálfarateymi, læknirinn og framkvæmdastjórinn komust með fluginu til Frankfurt. Svo komum við 15-20 til viðbótar seinna til Bakú. Það eina sem hefði getað stytt ferðalagið hefði verið beint leiguflug frá Íslandi, það var skoðað en það fékkst ekki starfsfólk í vélina."

Ferðalagið heim er svo sambærilegt, leikmannahópurinn flýgur til Mílanó og þaðan heim, en aðrir fljúga til London og þaðan til Íslands.

Gríðarlega erfitt verkefni
Verkefnið leggst eins vel í Samma og mögulegt er. „Auðvitað er Qarabag frábært fótboltalið og ég held að það hefði ekki breytt neinu hvaða íslenska liði hefði verið hent í þetta verkefnið, líkurnar hefðu ekki verið með íslenska liðinu. Þetta er tilhlökkun fyrir strákana að takast á við þetta. Fyrir okkur í kringum liðið er þetta skemmtilegt verkefni sem þarf að sinna, það er tilhlökkun en auðvitað verður þetta gríðarlega erfitt, það gera sér allir grein fyrir því. Ég horfði smá á æfingaleik hjá Qarabag nýlega, þeir eru geðveikt góðir, en ég bjóst við þeim ennþá betri. Ég geri ekki ráð fyrir því að þeir eyði meiri orku í þetta verkefni en þeir þurfa."

Pétur varð eftir heima
Miðjumaðurinn Fatai Gbadamosi verður í leikmannahópnum á fimmtudag en hann er ekki orðinn spilfær eftir að hafa slitið krossband í hné fyrir tæpu ári síðan. „Við verðum með 22 á skýrslu, allir fara með fyrir utan Pétur Bjarnason sem er nýkominn úr aðgerð og er á hækjum heima."

Ekki hefðbundið tímabil í Lengjudeildinni
Vestramenn verða mættir á föstudagskvöldi til Íslands. Þá tekur við tveggja daga hvíld og svo deildarleikur gegn Fylki á mánudagskvöld.

„Við hefðum alveg verið til í að færa bæði leikina gegn Fylki og HK eitthvað lengra fram í tímann en það eru bara engar dagsetningar. Eins og Birkir Sveinsson vinur minn (mótastjóri KSÍ) sagði við mig þá gerist það ekki á hverju ári að Lengjudeildarlið fer í bikarúrslit, Fylkir á eftir að mæta Aftureldingu, og Lengjudeildarlið í Evrópukeppni. Þetta er ekki venjulegt ár í deildinni."

Undirbúningurinn gæti vart verið betri
Það er flott veður í Bakú, þó kannski aðeins í heitara laginu. Fjögurra klukkustunda munur er á tímanum í Reykjavík og í Bakú, leikurinn hefst því klukkan 20:00 að staðartíma. „Það eru um 30 gráður, fer ekki mikið neðar en það. Gæti kannski verið um 28°C þegar leikurinn fer fram."

Sammi þakkar Verdi Travel fyrir aðstoðina við skipulagningu ferðalagsins. „Það ber að hrósa þeim, allt upp á tíu. Það á eftir að fara vel um strákana úti og ég held að undirbúningurinn gæti eiginlega ekki verið betri út frá ferðalaginu."

Á fínni siglingu í deildinni
Vestri hefur verið á fínni siglingu í Lengjudeildinni eftir smá bras til að byrja með.

„Það hefur verið stígandi í Vestraliðinu að undanförnu, við höfum spilað svolítið þétt og erum ekki með svakalega stóran hóp. Það urðu miklar breytingar á hópnum milli tímabila og við vissum að það tæki tíma að þétta raðirnar. Við gerðum jafntefli við Grindavík um helgina og fyrir það höfðum við unnið Aftureldingu og gert jafntefli við Þrótt á útivelli, frá mér séð hefðum við aldrei átt að tapa fyrir Leikni þar á undan. Þetta er allt í áttina. Það er klárlega betra að fara inn í þessa leiki á töluvert betri stað en í byrjun móts."

Von á tíðindum af þjálfaramálum
Jón Þór Hauksson var ráðinn inn í þjálfarateymi Vestra fyrir tímabilið. Það er krafa frá UEFA að þjálfari liðsins sé með UEFA Pro þjálfaragráðuna þar sem liðið tekur þátt í Evrópukeppni. Jón Þór var svo ráðinn þjálfari Stjörnunnar í síðasta mánuði.

„Af því við misstum Jón Þór til Stjörnunnar þá höfum við smá tíma til að bregðast við. Þau mál eru í skoðun ennþá og ég á von á því að við munum kynna þjálfara til leiks mjög fljótlega. Þetta er í vinnslu," segir Sammi.
'Fyrir okkur í kringum liðið er þetta skemmtilegt verkefni sem þarf að sinna, það er tilhlökkun en auðvitað verður þetta gríðarlega erfitt, það gera sér allir grein fyrir því'

'Fyrir okkur í kringum liðið er þetta skemmtilegt verkefni sem þarf að sinna, það er tilhlökkun en auðvitað verður þetta gríðarlega erfitt, það gera sér allir grein fyrir því'

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Styttist í Fatai.

Styttist í Fatai.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Pétur þurfti að fara í aðgerð.

Pétur þurfti að fara í aðgerð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri þarf að finna mann í stað Jóns Þórs.

Vestri þarf að finna mann í stað Jóns Þórs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Qarabag er gríðarlega sterkt lið sem endaði í 22. sæti Meistaradeildarinnar á liðnu tímabili og tapaði svo gegn Newcastle í umspilinu.

Qarabag er gríðarlega sterkt lið sem endaði í 22. sæti Meistaradeildarinnar á liðnu tímabili og tapaði svo gegn Newcastle í umspilinu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.