25.08.26 - 23:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Sturluð dramatík er Celtic og Víkingsbanarnir féllu úr leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var svakaleg dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar í kvöld þegar Celtic og Víkingsbanarnir Hapoel Be'er Sheva féllu úr leik.
Celtic var í mjög góðum málum eftir 3-0 sigur á austurríska liðinu LASK í fyrri leik liðanna í Skotlandi.
Staðan varð ennþá betri þegar Callum McGregor kom liðinu yfir í Austurríki í kvöld. Austurríkismenn bitu hins vegar vel frá sér og staðan var orðin 3-1 (samanlagt 3-4) eftir tæplega klukkutíma leik.
Þeir skoruðu síðan fjórða markið á lokamínútu venjulegs leiktíma og leikurinn fór í framlengingu. Þar hafði LASK betur og Samuel Adeniran skoraði sigurmarkið á 109. mínútu.
Hapoel Be'er Sheva vann Víking í 2. umferð forkeppninnar og vann svo Rauðu stjörnuna í næstu umferð. Liðið mætti síðan Sabah frá Aserbaísjan. Fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Hapoel á heimavelli.
Liðið var með 4-2 forystu í einvíginu en Sabah minnkaði muninn þegar stundafjórðungur var til leiksloka og jafnaði metin í einvíginu á fjórðu mínútu í uppbótatíma.
Shabah gekk síðan frá Hapoel í framlengingunni og tryggði sér 5-2 sigur og samanlagt 6-4. Hapoel nældi sér í tvö rauð spjöld í framlengingunni.
Sabah og LASK eru að fara í Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögunni en Hapoel og Celtic fara í Evrópudeildina.
Sabah FK 5 - 2 Hapoel Beer Sheva
0-1 Igor Zlatanovic ('10 )
1-1 Christian Nwachukwu ('38 )
1-2 Guy Mizrahi ('61 )
2-2 Umarali Rakhmonaliev ('74 )
3-2 Tellur Mutallimov ('90 )
4-2 Orphe Mbina ('101 )
5-2 Joy-Lance Mickels ('115 )
Rautt spjald: ,Djibril Diop, Hapoel Beer Sheva ('100)Eliel Peretz, Hapoel Beer Sheva ('117)
LASK Linz 5 - 1 Celtic
0-1 Callum McGregor ('21 )
1-1 Moses Usor ('32 )
2-1 Robert Ljubicic ('48 )
3-1 Samuel Adeniran ('58 )
4-1 Florian Flecker ('90 )
5-1 Samuel Adeniran ('109 )
5-1 Samuel Adeniran ('115 , Misnotað víti)