Fotbolti.net
25.08.26 - 12:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

City mun búa til óreiðu með risatilboði fyrir lok gluggans

Enzo Fernandez gæti farið til City.

Enzo Fernandez gæti farið til City.

Canon

Mynd: EPA

Enzo Fernandez er skotmark Manchester City en Enzo Maresca, stjóri CIty, er aðdáandi argentínska miðjumannsins og unnu þeir saman hjá Chelsea.

talkSPORT hefur heimildir fyrir því að City muni bjóða í argentínska landsliðsmanninn fyrir gluggalok, en glugganum verður lokað næsta þriðjudagskvöld.
Áður hafði verið sagt að City yrði að klára kaup á Fernandez fyrir klukkan fimm föstudaginn 14. ágúst og þá var verðmiðoinn 120 milljónir punda.

City bauð ekki í leikmanninn en búist er við því að viðræður fari af stað fljótlega.

Fernandez byrjaði á bekknum hjá Chelsea í gær þegar Chelsea sigraði Fulham. Hann lék síðustu 25 mínúturnar og bauluðu stuðningsmenn Chelsea á hann.

City er að kaupa Ayyoub Bouaddi frá Lille en þeir ljósbláu vilja fá inn einn miðjumann í viðbót þar sem Nico Gonzalez er á leið til Newcastle.

Chelsea er á sama tíma að skoða miðjumenn. Félagið hefur verið orðað við Alex Scott, Adam Wharton, Manu Kone og Eduardo Camavinga.
Enzo Maresca er stjóri City.

Enzo Maresca er stjóri City.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.