Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. september 2019 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Puyol í viðræðum við Barca
Puyol og Abidal ásamt Lionel Messi.
Puyol og Abidal ásamt Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Carles Puyol, fyrrum leikmaður Barcelona og spænska landsliðsins, er í viðræðum við Barcelona um að taka við starfi yfirmanns íþróttamála.

Börsungum vantar yfirmann íþróttamála sem stendur og myndi Puyol starfa þar samhliða Eric Abidal og Ramon Planes.

„Við erum í viðræðum við Puyol. Vonandi komumst við að samkomulagi því hann veit mjög mikið um hvernig knattspyrnuheimurinn virkar," sagði Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, við Barca TV.

„Hann er búinn að vera að undirbúa sig fyrir þetta starf undanfarin ár og allir innan félagsins vilja sjá hann koma aftur."
Athugasemdir
banner
banner