07.09.26 - 21:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Sterkur sigur hjá Víkingi - Breiðablik á toppnum

Thea Rhode

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sierra Marie Lelii

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Thea Rhode

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lokaumferðinni í Bestu deild kvenna fyrir tvískiptinguna lauk í kvöld með tveimur leikjum.
Breiðablik gat endurheimt toppsætið af FH en liðið heimsótti Þrótt. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir fékk fyrsta færi leiksins eftir stundafjórðung en Þróttarar björguðu í horn.

Blikar náðu forystunni undir lok fyrri hálfleiks þegar Katelyn Duong átti skot úr teignum og boltinn lak í netið.
Bríet Fjóla Bjarnadóttir var nálægt því að jafna metin snemma í seinni hálfleik en skotið rétt framhjá markinu. Þróttur jafnaði metin stuttu síðar þegar Sierra Marie Lelii skoraði með skalla eftir hornspyrnu í sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu í sumar.
Kayla Marie Rollins fékk gullið tækifæri til að koma Þrótti yfir þegar skammt var til loka leiksins en Taylor Kane varði vel frá henni. Stuttu síðar fékk Agla María Albertsdóttir færi hinu megin en skaut í stöngina.
Jelena Tinna Kujundzic fékk dauðafæri til að tryggja Þrótti sigurinn í blálokin en setti boltann framhjá.
Hvorugu liðinu tókst að skora sigurmarkið og jafntefli var því niðurstaðan. Breiðablik er á toppnum með 37 stig, jafn mörg stig og FH. Þróttur er í 5. sæti með 23 stig og verður í efri hlutanum þegar deildin skiptist.
Þá fékk Stjarnan Víking í heimsókn. Murielle Tiernan var nálægt því að koma boltanum í netið þegar hún var með boltann út á kanti en boltinn fór í slána.
Jasmín Erla Ingadóttir átti síðan skot í slána hinu megin stuttu síðar.
Víkingur náði forystunni þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir skoraði eftir að Jasmín skallaði boltann fyrir fætur hennar.
Snædís María Jörundsdóttir jafnaði metin fyrir Stjörnuna eftir klukkutíma leik þegar hún skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Þóru Maríu Hjaltadóttir.
Það var dramatík í lokin því Thea Rhode kom Víkingum yfir eftir sendingu frá Jasmín Erlu þegar skammt var til loka leiksins. Það reyndist sigurmarkið.
Víkingur komst af botninum og er með 20 stig, stigi á undan Þór/KA og stigi á eftir Val. Stjarnan er í 4. sæti með 26 stig.
Stjarnan 1 - 2 Víkingur R.
0-1 Bergþóra Sól Ásmundsdóttir ('41 )
1-1 Snædís María Jörundsdóttir ('61 )
1-2 Thea Rhode ('89 )
Lestu um leikinn
Þróttur R. 1 - 1 Breiðablik
0-1 Katelyn Duong ('42 )
1-1 Sierra Marie Lelii ('61 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 18 | +25 | 37 |
| 2 | FH | 18 | +24 | 37 |
| 3 | ÍBV | 18 | -3 | 27 |
| 4 | Stjarnan | 18 | +4 | 26 |
| 5 | Þróttur R. | 18 | -3 | 23 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 18 | -8 | 22 |
| 7 | Fram | 18 | -15 | 22 |
| 8 | Valur | 18 | -9 | 20 |
| 9 | Víkingur R. | 18 | -11 | 20 |
| 10 | Þór/KA | 18 | -4 | 19 |