Fotbolti.net
07.09.26 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Goretzka meiddur og verður ekki með næstu vikurnar

Goretzka meiddur og verður ekki með næstu vikurnar
Canon

Mynd: Aston Villa

Leon Goretzka gekk til liðs við Aston Villa á frjálsri sölu í sumar eftir að samningur hans við Bayern Munchen rann út.

Hann hefur ekki enn spilað fyrir enska liðið og það er ljóst að stuðningsmenn Villa þurfa að bíða lengur eftir því að sjá hann á vellinum.
Hann er meiddur á hné og verður ekki með Aston Villa í næstu leikjum.

Goretzka greindi frá því á samfélagsmiðlum að álagið á æfingum hafi tekið sinn toll eftir langt frí og hann muni ekki geta spilað fyrr en eftir landsleikjahléið í byrjun október.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.