Fotbolti.net
07.09.26 - 16:26
Elvar Geir Magnússon

Chelsea kannaði Berge

Sander Berge í leik með Fulham.

Sander Berge í leik með Fulham.

Canon

Mynd: EPA

Chelsea sýndi norska miðjumanninum Sander Berge hjá Fulham áhuga í lok sumargluggans.

Breska ríkisútvarpið segir Chelsea ekki hafa gert formlegt tilboð í þennan 28 ára leikmann og Fulham gaf út að hann væri ekki til sölu. Síðan hann kom frá Burnley árið 2023 hefur Berge orðið lykilmaður fyrir Fulham og spilað 78 leiki.
Chelsea vill tryggja sér Alex Scott
TENGT EFNI

Chelsea vill tryggja sér Alex Scott

Að lokum einbeitti Chelsea sér að Lamine Camara hjá Mónakó og var nálægt því að landa honum þar til staðan breyttist skyndilega undir lok gluggans.

Að fá inn nýjan miðjumann eftir söluna á Enzo Fernandez til Manchester City verður líklega forgangsatriði hjá Chelsea í janúarglugganum. Alex Scott hjá Bournemouth er ofarlega á óskalistanum.

Moises Caicedo var ekki með í tapinu gegn Arsenal í gær en vonast er til þess að hann snúi aftur snúi aftur fyrir heimaleikinn gegn Hull á laugardaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.