Fotbolti.net
07.09.26 - 16:18
Elvar Geir Magnússon

Árni Gautur heiðraður af Skagamönnum

Eggert Herbertsson formaður ÍA, Árni Gautur Arason og Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri.

Eggert Herbertsson formaður ÍA, Árni Gautur Arason og Ingimar Elí Hlynsson framkvæmdastjóri.

Canon

Mynd: ÍA

ÍA veitti Árna Gauti Arasyni sérstaka heiðursviðurkenningu félagsins fyrir leik ÍA og KR í Bestu deildinni í gær, fyrir glæsilegan feril og framlag til fótboltans á Akranesi.

„Árni ólst fyrstu ár sín upp í Bandaríkjunum en flutti til Akraness á níunda aldursári. Hann ólst upp á túnum bæjarins, meðal annars á Merkúrtúninu, líkt og margir af þeim öflugu leikmönnum sem voru honum samferða," segir í tilkynningu frá ÍA sem sjá má í heild hér að neðan.
Árni Gautur opnar sig um taugahrörnunarsjúkdóm
TENGT EFNI

Árni Gautur opnar sig um taugahrörnunarsjúkdóm

Á síðasta ári opnaði Árni Gautur sig opinberlega um glímu sína við Huntington taugahrörnunarsjúkdóminn. Arfgengan sjúkdóm sem hefur áhrif á taugakerfi líkamans.

Árni var markvörður og lék á ferlinum 71 landsleik fyrir Ísland. Fyrsti landsleikur Árna var 1998 en sá síðasti haustið 2010. Hans frægasti leikur kom þó 2004 en hann var í skamman tíma á mála hjá Manchester City.

Þrátt fyrir að hafa aðeins spilað tvo bikarleiki fyrir félagið reyndist annar þeirra afar eftirminnilegur en það var leikur gegn Tottenham í fjórðu umferð bikarkeppninnar. City var 3-0 undir í hálfleik og manni færri en sneri leiknum sér í hag og vann ótrúlegan viðsnúningssigur, 4-3.

Tilkynning ÍA
Árni Gautur Arason hlaut Heiðursviðurkenningu KFÍA

Fyrir leik ÍA og KR í gær veitti Knattspyrnufélag ÍA Árna Gauti Arasyni Heiðursviðurkenningu KFÍA fyrir glæsilegan knattspyrnuferil og framlag hans til knattspyrnunnar á Akranesi.
Árni ólst fyrstu ár sín upp í Bandaríkjunum en flutti til Akraness á níunda aldursári. Hann ólst upp á túnum bæjarins, meðal annars á Merkúrtúninu, líkt og margir af þeim öflugu leikmönnum sem voru honum samferða.

Hann byrjaði að æfa knattspyrnu sem útileikmaður en á eldra ári í 5. flokki ákvað hann að fara í markið til að leysa markmannsvanda sem hafði komið upp í flokknum. Það leið ekki á löngu þar til Árni Gautur var orðinn einn efnilegasti markvörður landsins.
Árni Gautur lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki ÍA árið 1994 og varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari með félaginu. Árið 1995 vann hann sér sæti í byrjunarliði hins geysiöfluga liðs Skagamanna. Hann var hins vegar óheppinn þegar hann meiddist illa í leik undir lok Íslandsmótsins.

Árni lék alls 31 leik með meistaraflokki ÍA áður en hann gekk til liðs við Stjörnuna árið 1997. Þar stoppaði hann stutt við, enda vakti hann fljótt athygli erlendra félaga. Arsenal sýndi honum meðal annars áhuga, en á endanum ákvað Árni að ganga til liðs við Rosenborg í Noregi.

Þar átti hann magnaðan feril og varð sex sinnum Noregsmeistari með Rosenborg. Síðar varð hann einnig norskur meistari með Vålerenga. Í úttekt norska blaðsins Aftenposten árið 2007 var Árni Gautur útnefndur besti útlendingurinn í sögu norsku deildarinnar.
Árið 2004 lék Árni með Manchester City og tók þar meðal annars þátt í frægum bikarleik gegn Tottenham. Manchester City lenti 3–0 undir en sneri leiknum sér í hag og vann að lokum 4–3.

Árni Gautur var um árabil fastamaður í A-landsliði Íslands og lék alls 71 A-landsleik fyrir Íslands hönd, auk 24 unglingalandsleikja.
Það er óhætt að segja að enginn markvörður sem Akranes hefur alið af sér hafi náð jafn langt á sínum ferli og Árni Gautur Arason.
Knattspyrnufélag ÍA óskar Árna Gauti innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar honum fyrir framlag hans til knattspyrnunnar á Akranesi.


Árni lék á ferlinum 71 landsleik fyrir Ísland.

Árni lék á ferlinum 71 landsleik fyrir Ísland.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.