Lionel Messi, einn af albestu fótboltamönnum sem uppi hafa verið, fór á kostum í kvöld og skoraði þrennu í 5-2 sigri Barcelona á Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni.
Messi vann á dögunum Ballon d'Or verðlaunin sem eru veitt besta fótboltamanni í heim ár hvert. Er það í sjötta sinn sem Messi vinnur verðlaunin, en hann sýndi áhorfendum á Nývangi gripinn fyrir leik kvöldsins.
Messi skoraði svo þrennu í leiknum og bætti met Cristiano Ronaldo, núverandi leikmanns Juventus og fyrrum leikmanns Real Madrid, yfir flestar þrennur í spænsku úrvalsdeildinni.
Ronaldo skoraði 34 þrennur í spænsku úrvalsdeildinni, en Messi hefur núna gert 35 talsins.
Mörk Messi í kvöld:
Fyrsta markið
Annað markið
Þriðja markið
LIONEL MESSI HAT TRICK!
— ESPN FC (@ESPNFC) December 7, 2019
He breaks Ronaldo's record for the most hat tricks in La Liga history! pic.twitter.com/CfFLcgr0ew
Athugasemdir