Rodri, Leon Goretzka, Dusan Vlahovic, Sandro Tonali og Marcus Rashford eru meðal þeirra sem koma við sögu
   sun 08. febrúar 2026 18:37
Brynjar Ingi Erluson
England: Hádramatískur endurkomusigur Man City á Anfield
Man City er enn inn í titilbaráttunni eftir endurkomusigur
Man City er enn inn í titilbaráttunni eftir endurkomusigur
Mynd: EPA
Szoboszlai skoraði geggjað aukaspyrnumark og sá síðan rautt undir lok leiks
Szoboszlai skoraði geggjað aukaspyrnumark og sá síðan rautt undir lok leiks
Mynd: EPA
Erling Braut Haaland skoraði sigurmarkið úr víti í uppbótartíma
Erling Braut Haaland skoraði sigurmarkið úr víti í uppbótartíma
Mynd: EPA
Liverpool 1 - 2 Manchester City
1-0 Dominik Szoboszlai ('74 )
1-1 Bernardo Silva ('84 )
1-2 Erling Haaland ('90 , víti)
Rautt spjald: Dominik Szoboszlai, Liverpool ('90)

Manchester City vann 2-1 endurkomusigur á Liverpool í háspennuleik í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Anfield í kvöld, en öll mörkin komu á lokakafla leiksins. Mikil dramatík átti sér stað undir lok leiks þar sem miðjumark Rayan Cherki var dæmt af og Dominik Szoboszlai rekinn af velli.

Pep Guardiola kom með skemmtilega taktík inn í leikinn þar sem var mikið flæði með þá Erling Braut Haaland og Omar Marmoush frammi, með Antoine Semenyo og Nico O'Reilly á vængjunum.

Gestirnir voru með alger völd á leiknum og fékk Haaland frábært færi snemma leiks til að koma þeim yfir eftir að Liverpool-menn gáfu boltann klaufalega frá sér en Alisson varði vel.

Liverpool-menn voru í basli með að skapa sér eitthvað af viti og náði liðið mjög fáum góðum spilköflum. Allt að ganga eftir áætlun Guardiola, nema það vantaði mörkin.

Heimamenn heppnir að fara inn í hálfleikinn án þess að fá á sig mark, en þeir mættu mun öflugari inn í þann síðari. Hugo Ekitike fékk tvö ágætis færi til að skora.

Mohamed Salah kom með frábæran bolta á Ekitike sem náði ekki að stýra skalla sínum á markið. Alisson sá þá við Semenyo hinum megin á vellinum.

Þessi leikur að bjóða upp á allt nema mörk. Liverpool átti fleiri skot á fyrstu ellefu mínútum síðari hálfleiksins en allan fyrri hálfleikinn og ljóst að hálfleiksræða Arne Slot hafi virkað.

Mögnuð spenna í þessum leik og þurfti eitthvað sérstakt til þess að koma boltanum í netið að og var það nákvæmlega það sem áhorfendur fengu, en á 73. mínútu fengu Liverpool-menn aukaspyrnu um það bil 30 metrum frá marki.

Man City stillti upp mjög furðulegum varnarvegg sem Dominik Szoboszlai nýtti sér til fulls. Hann þrumaði boltanum með sínum sérstaka stíl með utanverðum boga og þaðan í stöng og inn. Ítalski markvörðurinn Gianluigi Donnarumma var hálf gáttaður og hreyfingarlaus á línunni.

Magnað mark hjá Szoboszlai sem hefur verið besti maður Liverpool á leiktíðinni.

Man City vissi fullvell að tap gegn Liverpool myndi nánast drepa vonir þeirra um að vera með í titilbaráttunni.

Á 84. mínútu tókst þeim að jafna leikinn. Rayan Cherki átti fyrirgjöf sem Haaland skallaði inn fyrir á Bernardo Silva sem tæklaði boltann í netið. Það var einhver umræða um rangstöðu, en Szoboszlai spilaði hann réttstæðan og staðan aftur jöfn.

Snemma í uppótartíma fékk Man City vítaspyrnu er Alisson braut á Matheus Nunes sem kom á mikilli ferð hægra megin í teiginn. Alisson sá gula spjaldið fyrir mótmæli sem skiluðu engu.

Haaland steig svellkaldur á punktinn og skoraði örugglega úr spyrnunni. Ótrúlega mikilvægt mark fyrir Man City en dramatíkinni var ekki lokið þar.

Donnarumma átti heimsklassavörslu frá Alexis Mac Allister undir lokin og á síðustu mínútunum var Alisson meira og minna frammi til þess að kreista fram jöfnunarmark. Það getur oft komið í bakið á liðum sem spila ekki með neinn í markinu.

Man City náði að vinna boltann og rúllaði Cherki boltanum frá miðjunni í átt að marki. Haaland og Szoboszlai voru að berjast við hvorn annan í að elta boltann sem lak alla leið í netið en stórfurðulegir atburðir gerðust í kjölfarið.

Markið var tekið af Cherki en á sama tíma var Szoboszlai rekinn af velli fyrir að rífa í Haaland. Mjög sérstök ákvörðun hjá VAR og fallegt mark tekið af Cherki.

Þetta var það síðasta sem gerðist í þessum leik og tók Man City sigurinn eftir alla þessa dramatík.

Man City er í öðru sæti með 50 stig, sex stigum frá toppliði Arsenal þegar þrettán umferðir eru eftir en Liverpool er í 6. sæti með 39 stig, fimm stigum frá Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir
banner