Fotbolti.net
08.02.26 - 19:25
Brynjar Ingi Erluson

Guardiola ekki sáttur með dómarann: Gefðu markið og svo geta allir farið heim

Guardiola ekki sáttur með dómarann: Gefðu markið og svo geta allir farið heim
Canon

Mynd: EPA

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hrósaði sínum mönnum í hástert eftir 2-1 endurkomusigurinn á Liverpool á Anfield í kvöld, en var ekkert sérstaklega sáttur með ákvörðun dómarans í lokin.
Sjáðu atvikið umtalaða á Anfield - „Drapst eitt besta augnablik tímabilsins“
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið umtalaða á Anfield - „Drapst eitt besta augnablik tímabilsins“

Man City kom til baka eftir að hafa lent 1-0 undir á 74. mínútu eftir stórkostlega aukaspyrnu Dominik Szoboszlai. Bernardo Silva jafnaði metin og þá skoraði Erling Braut Haaland sigurmarkið í uppbótartíma.

„Þetta var frábær auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina. Fyrri hálfleikurinn var ótrúlega góður en svo töpuðum við skriðþunganum í seinni hálfleik. Anfield er stundum þannig. Eftir það spiluðum við beinskeytt og töpum síðan boltanum af því við vorum passífir. Þetta var rosalegt mark hjá Szoboszlai, en eftir það leiddi fyrirliðinn okkar, Bernrdo, okkur til baka inn í leikinn.“

„Andinn hefur verið til staðar og fyrri hálfleikurinn var almennt séð mjög góður, en það var smá þreyta í seinni. Omar og Erling voru passífir og þess vegna vorum við í basli.“


Bernardo Silva, fyrirliði Man City, fékk svakalegt hrós frá Guardiola.

„Hann er einn af bestu leikmönnum sem ég þjálfað. Hann er fullkominn fyrirliði og það gleður mig sem þjálfara að hafa hann hér. Liðið er alltaf í fyrsta sæti og framlag hans er ómetanlegt. Hann er ein af goðsögnum félagsins.“

Á lokasekúndum leiksins tók dómarinn mark Rayan Cherki frá miðju. Cherki rúllaði boltanum í autt markið, en eftir skoðun VAR þá var Szoboszlai rekinn af velli fyrir að rífa í Haaland áður en boltinn lak í netið. Guardiola er ekki sáttur með þá ákvörðun.

„Kommon, dómari. Gefðu markið og svo geta allir farið heim,“ sagði Guardiola um atvikið í lokin.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.