Fotbolti.net
08.02.26 - 18:49
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu atvikið umtalaða á Anfield - „Drapst eitt besta augnablik tímabilsins“

Markið var tekið af Cherki og Szoboszlai sendur í sturtu

Markið var tekið af Cherki og Szoboszlai sendur í sturtu

Canon

Mynd: EPA

Eitt furðulegasta atvik tímabilsins átti sér stað undir loks hjá Liverpool og Manchester City á Anfield í kvöld.
England: Hádramatískur endurkomusigur Man City á Anfield
TENGT EFNI

England: Hádramatískur endurkomusigur Man City á Anfield

Liverpool var í leit að jöfnunarmarki í uppbótartímanum og hafði Alisson Becker, markvörður Liverpool, verði í fremstu víglínu í um það bil tvær mínútur áður en Man City náði að vinna boltann.

Rayan Cherki rúllaði boltanum frá miðju og í átt að marki. Á sama tíma börðust Erling Braut Haaland og Dominik Szoboszlai um að ná til boltans, en Ungverjinn braut á Haaland áður en boltinn lak í netið.

Man City fagnaði Cherki enda virtist þetta vera löglegt mark, en markið var tekið af franska leikmanninum eftir skoðun VAR. Szoboszlai var rekinn af velli fyrir að toga Haaland niður og eitt besta augnablik tímabilsins rænt af Cherki.

„Ég botna ekkert í þessu. Hann braut á honum, það er brotið. Þetta er svo óréttlátt. Ég veit að það eru reglur, en það þarf að lesa aðeins í leikinn þarna. Enginn dómari á að dæma þetta mark af.“

„Leyfðu markinu að standa. Talandi um að vera gleðispillir. Hann var að drepa eitt besta augnablik tímabilsins,“
sagði Gary Neville í lýsingunni.

Sjáðu markið hér

Sjáðu brotið hjá Szoboszlai hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.