Emilia Kiær Ásgeirsdóttir gerði fimmta deildarmark sitt er RB Leizig vann 3-1 sigur á Hamburger SV í þýsku deildinni í dag. María Catharina Ólafsdóttir Gros skoraði þá þrennu fyrir Djurgården í æfingaleik.
Framherjinn er að eiga ágætis tímabil með Leipzig en hún byrjaði leikinn og skoraði mikilvægt annað mark sem kom liðinu í 2-1 forystu á 83. mínútu.
Leipzig gerði þriðja markið seint í uppbótartíma og kom sér upp um eitt sæti á töflunni. Nú er það í 10. sæti með 17 stig, einu stigi frá Union Berlín sem er í 9. sætinu.
María Catharina Ólafsdóttir Gros, sem samdi við Djurgården á dögunum, skoraði þrennu fyrir liðið í 6-1 stórsigri á Gefle í æfingaleik.
Næst mætir liðið Brommapojkarna í riðlakeppni sænska bikarsins en sá leikur er spilaður 14. febrúar næstkomandi.
Athugasemdir



