08.02.26 - 21:59
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Real Madrid heldur pressunni á Barcelona - Mbappe skoraði sjötta leikinn í röð

Kylian Mbappe er langmarkahæstur í La Liga

Mynd: EPA

Kylian Mbappe er langmarkahæstur í La Liga

Mynd: EPA
Valencia 0 - 2 Real Madrid
0-1 Alvaro Carreras ('65 )
0-2 Kylian Mbappe ('90 )
0-1 Alvaro Carreras ('65 )
0-2 Kylian Mbappe ('90 )
Spænska stórliðið Real Madrid vann Valencia, 2-0, á Mestalla-leikvanginum í 23. umferð La Liga á Spáni í kvöld.
Bakvörðurinn Alvaro Carreras hafði aðeins skorað eitt deildarmark fyrir þennan leik og kom það einmitt gegn Valencia á Santiago Bernabeu, en hann er að reyna að gera hefð úr þessu.
Carreras tróð sér í gegnum varnarmenn Valencia, inn í teiginn og setti boltann síðan í nærhornið.
Franski sóknarmaðurinn gulltryggði stigin þrjú með marki undir lok leiks sem var hans 23. mark í deildinni á tímabilinu. Mbappe var að skora sjötta leikinn í röð í öllum keppnum.
Real Madrid saxaði forskot Barcelona niður í eitt stig en Madrídingar eru með 57 stig í öðru sæti á meðan Börsungar eru á toppnum með 58 stig.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 10 | +29 | 27 |
| 2 | Atletico Madrid | 10 | +12 | 25 |
| 3 | Real Madrid | 10 | +15 | 24 |
| 4 | Betis | 10 | +2 | 20 |
| 5 | Real Sociedad | 10 | +1 | 19 |
| 6 | Sevilla | 9 | -2 | 14 |
| 7 | Alaves | 10 | +3 | 12 |
| 8 | Athletic | 9 | +3 | 12 |
| 9 | Celta | 10 | +3 | 12 |
| 10 | Villarreal | 10 | +1 | 12 |
| 11 | Deportivo | 10 | 0 | 11 |
| 12 | Osasuna | 9 | -8 | 11 |
| 13 | Racing Santander | 10 | -11 | 11 |
| 14 | Levante | 10 | -3 | 10 |
| 15 | Elche | 10 | -3 | 10 |
| 16 | Vallecano | 9 | -8 | 9 |
| 17 | Getafe | 10 | -10 | 9 |
| 18 | Espanyol | 10 | -2 | 8 |
| 19 | Valencia | 10 | -10 | 6 |
| 20 | Malaga | 10 | -12 | 5 |