Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 08. mars 2021 21:53
Victor Pálsson
England: Lingard skoraði í sigri á Leeds
West Ham 2 - 0 Leeds
1-0 Jesse Lingard ('21 )
1-0 Jesse Lingard ('21 , Misnotað víti)
2-0 Craig Dawson ('28 )

West Ham gefur ekkert eftir í Meistaradeildarbaráttunni á Englandi en liðið mætti Leeds á heimavelli í kvöld.

West Ham var fyrir leikinn í 8. sæti deildarinnar en gat með sigri lyft sér upp í það fimmta og væri þá tveimur stigum á eftir Chelsea.

David Moyes og hans menn fögnuðu sigri í kvöld en það voru þeir Jesse Lingard og Craig Dawson sem gerðu mörkin.

Fyrra markið gerði Lingard eftir vítaspyrnu en Ilan Meslier varði spyrnu Englendingsins sem náði frákastinu og skoraði.

Mark Dawson kom sjö mínútum síðar en hann skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu til að tryggja 2-0 sigur.

West Ham er því í fimmta sætinu, tveimur stigum á eftir Chelsea.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp