Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 15:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski bikarinn: Botnliðið í C-deildinni vann Sunderland
Régis Le Bris, stjóri Sunderland, væntanlega ekki sáttur
Régis Le Bris, stjóri Sunderland, væntanlega ekki sáttur
Mynd: EPA
Port Vale 1 - 0 Sunderland
1-0 Ben Waine ('28 )

Port Vale, botnlið C-deildarinnar, fékk Sunderland í heimsókn í enska bikarnum í dag.

Sunderland réði ferðinni en Port Vale náði óvænt forystunni eftir hálftíma leik þegar Ben Waine kom boltanum í netið af miklu harðfylgi.

Sunderland menn reyndu hvað þeir gátu að jafna metin og voru með öll völd á vellinum í seinni hálfleik en allt kom fyrir ekki og mark Waine skildi liðin að.

Magnaður árangur hjá Port Vale sem vann Championship liðið Bristol City í síðustu umferð.
Athugasemdir
banner