08.05.15 - 13:58
Magnús Már Einarsson
Janez Vrenko og Clary Kouma Kurs í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Janez Vrenko.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Dalvík/Reynir hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í 2. deildinni í sumar en Janez Vrenko og Clary Kouma Kurs hafa gengið til liðs við félagið.
Vrenko er 32 ára varnarmaður frá Slóvenú en hann hefur spilað með KA og Þór frá árinu 2006 með Þór.
Í fyrra dvaldi hann mikið erlendis en samtals kom hann við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni.
Clary Kouma er franskur framherji en hann kemur til Dalvíkur/Reynis eftir stutt stopp hjá BÍ/Bolungarvík þar sem hann var á reynslu.
Dalvík/Reyni er spáð ellefta og næstneðsta sæti í 2. deildinni í sumar en liðið mætir Aftureldingu í fyrstu umferðinni á morgun.
Leikurinn fer fram í Boganum á Akureyri þar sem Dalvíkurvöllur er ekki klár í slaginn.