Fotbolti.net
08.06.15 - 22:00
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Montella rekinn frá Fiorentina (Staðfest)

Vincenzo Montella er farinn frá Fiorentina.

Vincenzo Montella er farinn frá Fiorentina.

Canon

Mynd: Getty Images

Vincenzo Montella hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri Fiorentina. Ástæðan er sögð skortur á tryggð gagnvart félaginu.

Montella hefur verið að daðra við þá hugmynd að taka við öðrum félögum undanfarið þó hann hafi verið samningsbundinn félaginu.
„Fiorentina metur hegðun hans sem svo að hann sé viljugur til að losa sig undan þeim skuldbindingum sem hann skrifaði undir fyrir minna en tveimur árum,\" segir í yfirlýsingu frá Fiorentina.

Ítalskir fjölmiðlar telja líklegast að Paulo Sousa, stjóri Basel, muni taka við af Montella.

Undir stjórn Montella hafnaði Fiorentina í 4. sæti ítölsku deildarinnar, fimm stigum frá Meistaradeildarsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.