08.06.15 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Vidal til Barcelona (Staðfest)
Kemur í janúar

Aleix Vidal.

Mynd: Getty Images

Aleix Vidal.

Mynd: Getty Images
Barcelona hefur keypt varnarmanninnn Aleix Vidal frá Sevilla en kaupverðið er í kringum 16 milljónir punda.
Hinn 25 ára gamli Vidal hefur gert fimm ára samning við Barcelona en hann á að fylla skarð Dani Alves í hægri bakverðinum.
Alves er samningslaus og á förum frá Barcelona.
Barcelona er í félagaskiptabanni í ár og því getur Vidal ekki gengið í raðir félagsins fyrr en í janúar á næsta ári.

Vidal hóf feril sinn hjá nágrönnum Barcelona í Espanyol en undanfarin ár hefur hann leikið með Sevilla.