Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ægir Jarl gæti komið heim - Rúnar Kristins hefur áhuga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru líkur á því að Ægir Jarl Jónasson komi heim til Íslands í sumarglugganum en hann er að klára sitt fyrsta tímabil með AB í Danmörku.

Félög í Bestu deildinni hafa sett sig í samband við Ægi út af mögulegri heimkomu, og á meðal þeirra er Fram. Við stjórnvölinn hjá Fram er Rúnar Kristinsson sem fékk Ægi til KR á sínum tíma frá Fjölni og var þjálfarinn hans í fimm tímabil.

Ægir er 27 ára miðjumaður sem varð Íslandsmeistari með KR 2019.

AB er í þriðju efstu deild Danmerkur og er Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari liðsins. Blikinn Ágúst Eðvald Hlynsson er liðsfélagi Ægis í AB.

Ægir er samningsbundinn AB út næsta tímabil. Liðið er sem stendur í fjórða sæti C-deildarinnar þegar ein umferð er eftir og á liðið ekki möguleika á að fara upp í B-deildina.

Liðið gerði sér lítið fyrir í gær og vann 4-0 sigur á liði Middelfart sem er á leið upp um deild og skoraði Ægir í þeim leik sitt fyrsta mark fyrir félagið, eða allavega fyrsta markið sem verður skráð á hann því fyrr í vetur var mark sem Ægir átti stóran þátt í skráð sem sjálfsmark.


Athugasemdir
banner