Þorlákur 5 - 5 Skallagrímur
0-1 Guðjón Andri Gunnarsson ('11 )
0-2 Reynir Skorri Jónsson ('18 )
0-3 Reynir Skorri Jónsson ('26 )
0-4 Reynir Skorri Jónsson ('29 )
0-5 Gunnar A. Scheving ('41 )
1-5 Snorri Jón Traustason ('51 )
2-5 Snorri Jón Traustason ('70, víti)
3-5 Luis Alberto Rodriguez Quintero ('78 )
4-5 Luis Alberto Rodriguez Quintero ('79 )
5-5 Karl Viðar Magnússon ('86 )
0-1 Guðjón Andri Gunnarsson ('11 )
0-2 Reynir Skorri Jónsson ('18 )
0-3 Reynir Skorri Jónsson ('26 )
0-4 Reynir Skorri Jónsson ('29 )
0-5 Gunnar A. Scheving ('41 )
1-5 Snorri Jón Traustason ('51 )
2-5 Snorri Jón Traustason ('70, víti)
3-5 Luis Alberto Rodriguez Quintero ('78 )
4-5 Luis Alberto Rodriguez Quintero ('79 )
5-5 Karl Viðar Magnússon ('86 )
Afar sérstakur slagur fór fram í 5. deild karla fyrr í kvöld þar sem Þorlákur og Skallagrímur áttust við í eina leik dagsins hér á landi.
Gestirnir í liði Skallagríms gjörsamlega rúlluðu yfir Þorlák í fyrri hálfleik og leiddu með fimm marka mun í leikhlé.
Reynir Skorri Jónsson var atkvæðamestur með þrennu en hlutirnir breyttust í síðari hálfleik þegar heimamenn svöruðu fyrir sig.
Snorri Jón Traustason minnkaði muninn á 51. mínútu og skoraði svo aftur úr vítaspyrnu á 70. mínútu, svo staðan var orðin 2-5.
Luis Alberto Quintero setti svo tvö mörk með stuttu millibili til að minnka muninn niður í eitt mark, áður en Karl Viðar Magnússon gerði jöfnunarmarkið.
Lokatölur urðu því 5-5 eftir ótrúlega endurkomu Þorláks.
Skallagrímur er með 8 stig eftir 5 umferðir á meðan Þorlákur er með 4 stig eftir 4 umferðir.



