Lamine Yamal, leikmaður Barcelona, hefur útskýrt ástæðuna fyrir því að hann spilar alltaf með sárabindi á hendinni, en það byrjaði vegna bræðis í Playstation.
Táningurinn spilar alltaf með sárabindi á hendinni, líkt og Karim Benzema og Luis Suárez gerðu frægt snemma á sínum ferli.
Yamal segir að upphaflega hafi þetta ekki verið tískufyrirbæri í hans augum, heldur hafi hann meiðst á hendinni eftir að hann tók bræðiskast í PlayStation.
„Sárabindið á hendinni minni? Einu sinni var ég að spila PlayStation og sló í sjónvarpið þannig að puttarnir bólgnuðu upp.“
„Eftir það fannst mér þetta fara mér nokkuð vel, eins og ég væri Karim Benzema. Ég man eftir brandaranum þar sem ég var kallaður KB9, KB9, þannig að ég ákvað að halda þessu áfram,“ sagði Yamal.
Sárabindið verður á sínum stað þegar Yamal og félagar í spænska landsliðinu mæta Grænhöfðeyjum í fyrsta leik á heimsmeistaramótinu. Leikurinn fer fram 15. júní og er spilaður á Mercedes Benz-leikvanginum í Atlanta.

