Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 23:39
Ívan Guðjón Baldursson
Coventry að kaupa dýrasta leikmann í sögu félagsins
Mynd: EPA
Mynd: Coventry
Coventry City vann sér inn sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 25 ára fjarveru.

Frank Lampard gerði magnaða hluti við stjórnvölinn og vann Championship deildina með ellefu stiga mun þrátt fyrir að vera ekki með stór nöfn innanborðs.

Nú þarf Coventry að styrkja sig fyrir komandi átök í úrvalsdeildinni og er að reyna að kaupa markvörðinn Carl Rushworth sem gerði frábæra hluti á láni hjá félaginu á nýliðinni leiktíð og var valinn sem besti leikmaður tímabilsins.

Rushworth var hjá Coventry á lánssamningi frá Brighton sem er ekki spennt fyrir að selja varamarkvörðinn sinn.

Rushworth er 24 ára gamall og hafnaði Brighton 15 milljón punda tilboði en Coventry hefur nú lagt fram endurbætt tilboð sem hljóðar upp á 20 milljónir.

Markvörðurinn er með eitt ár eftir af samningi sínum við Brighton, með möguleika á auka ári.

Rushworth yrði langdýrasti leikmaður í sögu Coventry, eða sá dýrasti síðan Craig Bellamy og Robbie Keane voru keyptir í kringum aldamótin. Síðan þá er Haji Wright sá eini sem hefur kostað svipaða upphæð, eða á milli 6 og 8 milljónir punda.

Rushworth yrði því um það bil þrefalt dýrari heldur en dýrasti leikmaður í sögu félagsins hingað til.

   01.05.2026 08:30
Vilja festa kaup á markverði Brighton

Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 46 28 11 7 97 45 +52 95
2 Ipswich Town 46 23 15 8 80 47 +33 84
3 Millwall 46 24 11 11 64 49 +15 83
4 Southampton 46 22 14 10 82 56 +26 80
5 Middlesbrough 46 22 14 10 72 47 +25 80
6 Hull City 46 21 10 15 70 66 +4 73
7 Wrexham 46 19 14 13 69 65 +4 71
8 Derby County 46 20 9 17 67 59 +8 69
9 Norwich 46 19 8 19 63 56 +7 65
10 Birmingham 46 17 13 16 57 56 +1 64
11 Swansea 46 18 10 18 57 59 -2 64
12 Bristol City 46 17 11 18 59 59 0 62
13 Sheffield Utd 46 18 6 22 66 66 0 60
14 Preston NE 46 15 15 16 55 62 -7 60
15 QPR 46 16 10 20 61 73 -12 58
16 Watford 46 14 15 17 53 65 -12 57
17 Stoke City 46 15 10 21 51 56 -5 55
18 Portsmouth 46 14 13 19 49 64 -15 55
19 Charlton Athletic 46 13 14 19 44 58 -14 53
20 Blackburn 46 13 13 20 42 56 -14 52
21 West Brom 46 13 14 19 48 58 -10 51
22 Oxford United 46 11 14 21 45 59 -14 47
23 Leicester 46 12 16 18 58 68 -10 46
24 Sheff Wed 46 2 12 32 29 89 -60 0
Slapp
banner
banner
banner